    <language>is</language>
Grund | Grundarheimilin
104 árum fagnað á Grund
Árlega fögnum við afmæli heimilisins hér á Grund og í ár eru 104 ár síðan Grund var formlega vígð í litlu húsi við Sauðagerðistún, þann 29. október árið 1922.
Afmælishátíðin hér á Grund tók tvo daga, hátíðasalurinn var klæddur í sparibúning og boðið upp á heitt súkkulaði og bakkelsi. 🎂
Forstjóri Grundarheimilanna, Karl Óttar Einarsson, flutti ávörp báða dagana, Grundarkórinn söng og leiddi einnig samsöng. 
Rúsínan í pylsuendanum var svo heimsókn Stefáns Helga Stefánssonar tenórs sem brá ser í líki Ragga Bjarna og svo Elvis.🥰]]></description>
Fjör í hátíðasal Grundar
Grundarbandið mætti í hátíðasalinn í síðustu viku og lék að venju fyrir dansi.  Heimilisfólk og starfsfólk skemmtu sér vel og það er rétt að minna á að aðstandendur eru líka alltaf hjartanlega velkomnir á viðburði eins og þessa. 🥰
Þetta er svo skemmtilegt og eflaust frábært að stíga dans með sínu fólki við dunandi harmonikkutóna Grundarbandsins. 🕺]]></description>
Grundarkórinn æfir vikulega
Grundarkórinn hefur verið starfræktur í mörg ár en hann skipa heimilismenn, starfsfólk, aðstandendur og velunnarar heimilisins. Kórinn hittist vikulega á æfingum og kemur fram við hátíðleg tækifæri og heldur einnig tónleika tvisvar á ári.
Kóræfingar eru komnar á fullt eftir sumarfrí en þær eru alla miðvikudaga. Kórstjóri er Kristín Waage.]]></description>
Nemendur mættu með bakkelsi
Það er góðgerðarvika hjá Verslunarskóla Íslands þessa dagana og nemendur komu á Grund til að láta gott af sér leiða. 🥰
Þeir komu færandi hendi með bakkelsi, sungu og fóru í leiki með heimilisfólki og lífguðu svo sannarlega  upp á hversdaginn hér hjá okkur á Litlu Grund. 
Takk kærlega fyrir skemmtilega heimsókn]]></description>
Fornbílar á Grund
Heimilisfólki á Grund fannst ekki leiðinlegt að fá þessa fornbíla í heimsókn fyrir skömmu. Verið var að taka upp sjónvarpsþætti fyrir utan heimilið og þetta voru fararskjótarnir sem notaðir voru í þáttunum.
Eflaust hafa þeir vakið upp skemmtilegar minningar hjá einhverjum.]]></description>
Frábærir tónleikar með Bubba
Það var margt um manninn í morgunstund í dag, fullur salur af fólki og eftirvænting í lofti.
Gesturinn í morgunstund að þessu sinni var hinn ástsæli Bubbi Morthens. Hann söng í um klukkustund og fór um víðan völl í lagavali. 
Með honum voru þeir Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir og Baldvin Hlynsson á píanó.
Frábærir tónleikar og þakka ykkur innilega fyrir komuna Bubbi, Halldór Gunnar og Baldvin. ]]></description>
Harmonikkusnillingar í söngstund
Á Grund mættust tveir snillingar í morgun þegar söngstund var á Litlu og Minni Grund. Reynir Jónasson og Jón Ólafur Þorsteinsson harmonikkuleikarar tóku lagið og hrifu aðra með sér.]]></description>
Kaffi Grund opið alla daga vikunnar
Það er skjólgott utandyra á Kaffi Grund ef fólk vill sitja í blíðunni þessa dagana og fá sér hressingu. Kaffihúsð er ekki bara opið fyrir heimilisfólk og aðstandendur heldur eru Vesturbæingar og aðrir velunnarar hjartanlega velkominir. 
Opið er inn á kaffihúsið frá Hringbraut alla daga vikunnar frá 13:00 til 17:00.]]></description>
Opið hús í Ási
Fjölmargir lögðu leið sína  á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að  skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa. 
Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.]]></description>
Opið hús sunnudaginn 26. júlí
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 74 ára afmæli Áss 
verður nýja hjúkrunarheimilið sem rís norðan Hverahlíðar opið 
gestum sunnudaginn 26. júlí frá 14.00 – 17.00.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Allir velkomnir
Gísli Páll stjórnarformaður Grundarheimilanna]]></description>
Á Grund er íslenska fjölskyldan mín
Á Grund vinnur frábært starfsfólk frá ýmsum þjóðlöndum. Ángel er frá Venesúela og hún hefur að undanförnu verið iðin við að skreyta veggina á Litlu og Minni Grund og virkjað heimilisfólkið með sér.
„Mér finnst gaman að gleðja heimilisfólkið sem hefur gefið mér svo mikið. Ástúð, góðvild, bros og faðmlög er það sem mætir mér  hér í vinnunni. Heimilisfólkið er duglegt að kenna mér íslensku og það má alveg segja að þetta er íslenska fjölskyldan mín, heimilisfólk og starfsfólk á Litlu og Minni Grund. Við erum frá ýmsum þjóðlöndum sem  hér störfum og  um daginn útbjó ég með aðstoð heimilisfólks veggspjald með þjóðfánum okkar allra.“
Ángel  segist alltaf hafa haft gaman af því að skapa og hún er með hjálp heimilisfólks að búa til fiðrildi, blóm og allskonar skraut sem þau hengja upp á veggi. Í Venesúela skreytti hún gjarnan kennslustofurnar líka en hún er kennari að mennt. 
Eiginmaður hennar og sonur komu með henni hingað til lands í leit að betri framtíð.  Sonur hennar Isaac stundar nú nám í Hagaskóla, spilar á gítar, ber út dagblöð og vinnur við garðyrkju í sumar. Hann spilar líka fótbolta og eiginmaðurinn Luis vinnur í fiskbúð í Hafnarfirði. 
Þau eru alsæl hér á landi og Ángel segist  hamingjusöm að  fá að vera nálægt frábæru fólk á Litlu og Minni Grund.]]></description>
Lúðrasveit í heimsókn
Þau lífguðu aldeilis upp á hversdaginn hér á Grund krakkar úr vinnuskólanum  sem komu til okkar á Hringbrautina  og spiluðu fyrir heimilisfólk. Það blés svolítið svo flestir horfðu út um gluggann á þessa hressu krakka en nokkrir létu sig hafa það og fóru út.
Hópurinn fer víða og gleður gesti og gangandi með lúðrasveitarhljómum. Frábær heimsókn. Takk fyrir komuna.]]></description>
Áttum fimm fulltrúa við útskrift um síðustu helgi
Við á Grundarheimilunum eru stolt að segja frá því að við áttum fimm fulltrúa við útskriftina hjá Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi.
Hasthika Lankathilaka starfsmaður á Grund og Maria Florinda Da Silva Abranja starfsmaður á hjúkrunardeildinni í Ási luku grunndiplómu í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða með sérhæfingu í öldrunar- og heimahjúkrun.
Ragnhildur Rún Vilmundardóttir brautskráðist með BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum.
Fanney Björg Karlsdóttir og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir brautskráðust með viðbótardiplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju. ]]></description>
Hátt á annað þúsund pönnukökur
Klukkan átta í morgun mættu þeir Ingvar Már yfirmatreiðslumeistari Grundarheimilanna og Benidikt bakari í eldhúsið í Mörk til að baka fyrir morgundaginn, 17. júní.
Alls baka þeir á um tíu pönnukökupönnum um  1.700 pönnukökur sem heimilisfólk, starfsfólk og íbúar hjá Íbúðum 60+ fá að gæða sér á eftir matinn eða með kaffinu á morgun.
Þeir búast við að klára baksturinn um hálfþrjú í dag]]></description>
Sprækar í sjúkraþjálfun
Það er alltaf nóg um að vera í sjúkraþjálfuninni á Grund. Hér eru það æfingar með þessum heiðurskonum.
Góða helgi.]]></description>
Vortónleikar Grundarkórsins
Það voru gamlir og góðir sumarsmellir í bland við önnur lög sem ómuðu úr hátíðasal Grundar þegar Grundarkórinn hélt vortónleika sína nú í vikunni.
Kórinn er nú kominn í sumarfrí og í haust byrja vikulegar æfingar aftur. Þá eru eins og endranær aðstandendur hjartanlega velkomnir í kórinn sem og starfsfólk og velunnarar heimilisins.]]></description>
Tónlist í umönnun á Grundarheimilunum
"Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykurtónlist einnig virkni og minnkar 
depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir,söngkona og tónlistarkennari í viðtali í Morgunblaðinu í morgun.
 Grundarheimilin hlutu  styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekku stúku nr. 1, Bergþóru til að gera átak í að upplýsa um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun með stórkostlegum árangri.
Meðal þess sem Magnea gerir er að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk Grundarheimilanna og aðstandendur um notkun tónlistar í daglegu lífi.]]></description>
Fjör í hátíðasal
Mánaðarlega kemur Grundarbandið í heimsókn  hingað á Grund og heldur uppi fjöri í hátíðasalnum. Þá er stiginn dans og mikið fjör. Þeir sem ekki eiga auðvelt með að dansa sitja bara í sætum sínum og dilla sér með.]]></description>
Nýbakaðar vöfflur á Kaffi Grund
Síðasta miðvikudag í hverjum mánuði liðast þessi líka dásamlegi vöffluilmur um fyrstu hæð Grundar því þá eru til sölu á Kaffi Grund nýbakaðar vöfflur með kaffinu.
Aðra daga er selt allskonar kruðerí með kaffinu og einnig smurt brauð og croissant.
Við hvetjum aðstandendur til að koma með fólkinu sínu á kaffi húsið og núna þegar fer að hlýna þá er um að gera að sitja í garðinum og leyfa ungviðinu að leika sér úti.
Að lokum minnum við á að það er opið  á Kaffi Mörk frá 12:00 til 17:00 alla virka daga og frá 13:00 til 17:00 um helgar.]]></description>
Peysufatadagurinn á Grund
Árlega gleðja nemendur Kvennaskólans okkur með heimsókn á peysufatadaginn og það ríkir ávallt mikil tilhlökkun að fá hópinn í heimsókn.
Heimilisfólk raðar sér í gluggana þegar nemendur mæta syngjandi og dansandi í portið og sumir klæða sig vel og koma út og fylgjast með.  Oftar en ekki eiga einhverjir nemendur ömmu, afa eða langömmu og langafa hér á heimilinu sem bíða spennt eftir að sjá afkomendur sína uppáklædda með þessum hætti.
Við hér á Grund erum þakklát fyrir að Kvennaskólinn hafi heimsókn á heimilið á dagskrá á peysufatadaginn. Takk innilega fyrir okkur. ]]></description>