    <language>is</language>
Fréttir | Grundarheimilin
Fjör í hátíðasal Grundar
Grundarbandið mætti í hátíðasalinn í síðustu viku og lék að venju fyrir dansi.  Heimilisfólk og starfsfólk skemmtu sér vel og það er rétt að minna á að aðstandendur eru líka alltaf hjartanlega velkomnir á viðburði eins og þessa. 🥰
Þetta er svo skemmtilegt og eflaust frábært að stíga dans með sínu fólki við dunandi harmonikkutóna Grundarbandsins. 🕺]]></description>
Sönghópurinn Tjaldur heimsækir Ás reglulega
Sönghópurinn Tjaldur kom hingað í Ás í síðustu viku. Það er alltaf tilhlökkunrefni þegar þessi notalegi sönghópur kemur í heimsókn. 
Ekki nóg með að hópurinn syngi létt og skemmtileg lög heldur nær hann líka að hrífa heimilisfólkið með og það er svo dásamlegt. ]]></description>
Handprjónaðar bleikar slaufur og bleikt bakkelsi
Það var svo sannarlega haldið upp á Bleika daginn í Ási í gær. Allt skreytt hátt og lágt  af heimilisfólki og starfsfólki og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir, Eyrún Samúelsdóttir og Hólmfríður Kristjánsdóttir prjónuðu og hekuðu slaufur og bönd handa þeim sem vildu bera og sýna með því stuðning. 🩷
En það var ekki nóg með að allt væri skreytt og fólk skartaði bleiku heldur voru líka bleikar kökur á boðstólum með kaffinu og nýbakaðar vöfflur með bleikum rjóma.
Dásamlegur dagur og allir svo glaðir bæði með tilbreytinguna og svo hinsvegar að fá að sýna þessu átaki Krabbameinsfélags Íslands og Bleiku slaufunnar stuðning]]></description>
Haustferð með heimilismönnum
Eden tenglar í Ási tóku að sér að skipuleggja haustferð fyrir heimilisfólk. Farið var á Lava safnið á Hvolsvelli þar sem gengið var um safnið með leiðsögn.  Komið var við á kaffihúsinu Auðkúlu og þar var boðið upp á vöfflur og kaffisopa. 
Þetta var dásamleg ferð og allir sem nutu sín.🥰
Sigrún Sveinsdóttir var með myndavélina á lofti.]]></description>
Bleikur dagur
Það er eins og flestir vita líklega bleikur dagur í dag, vitundardagur á vegum Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélags Íslands. 🌸🌷
Á þriðju hæðinni í Mörk var ákveðið að minna rækilega á málstaðinn og allt skreytt hátt og lágt. Að auki var boðið upp á bleikar veitingar og svo klæddust flestir einhverju bleiku.
Frábær tilbreyting og allir sem vettlingi geta valdið tóku þátt í þessari skemmtilegu uppákomu.]]></description>
Nemendur buðu upp á stólajóga
Í gær fengum við skemmtilega heimsókn upp á aðra hæð hér í Mörk.  Fjórir nemendur úr Verslunarskóla Íslands komu til okkar en þar stendur yfir góðgerðarvika. ❤️
Ungmennin eru á fyrsta ári í Versló og buðu upp á  stólajóga og spiluðu síðan OlsenOlsen.
Frábær stund og allir ánægðir með þessa notalegu og skemmtilegu tilbreytingu. 🥰
 Í dag eigum við von á öðrum hópi frá Versló sem ætlar að mæta í morgunstund á fjórðu hæð]]></description>
Grundarkórinn æfir vikulega
Grundarkórinn hefur verið starfræktur í mörg ár en hann skipa heimilismenn, starfsfólk, aðstandendur og velunnarar heimilisins. Kórinn hittist vikulega á æfingum og kemur fram við hátíðleg tækifæri og heldur einnig tónleika tvisvar á ári.
Kóræfingar eru komnar á fullt eftir sumarfrí en þær eru alla miðvikudaga. Kórstjóri er Kristín Waage.]]></description>
Nemendur mættu með bakkelsi
Það er góðgerðarvika hjá Verslunarskóla Íslands þessa dagana og nemendur komu á Grund til að láta gott af sér leiða. 🥰
Þeir komu færandi hendi með bakkelsi, sungu og fóru í leiki með heimilisfólki og lífguðu svo sannarlega  upp á hversdaginn hér hjá okkur á Litlu Grund. 
Takk kærlega fyrir skemmtilega heimsókn]]></description>
Fornbílar á Grund
Heimilisfólki á Grund fannst ekki leiðinlegt að fá þessa fornbíla í heimsókn fyrir skömmu. Verið var að taka upp sjónvarpsþætti fyrir utan heimilið og þetta voru fararskjótarnir sem notaðir voru í þáttunum.
Eflaust hafa þeir vakið upp skemmtilegar minningar hjá einhverjum.]]></description>
Þrjár heimiliskonur hekluðu 120 armbönd
Í tilefni af gulum degi fyrir skömmu tókum við okkur til í Ási  og fengum starfsfólk og heimilisfólk í lið með okkur og við hekluðum og prjónuðum bönd. 
Markmiðið var að allir sem vildu gætu sýnt málstaðnum stuðning og borið armband.
Þetta fór fram úr björtustu vonum og til dæmis hekluðu heimiliskonurnar Eyrún, Hólmfríður og Guðrún um 120 bönd. Allir starfsmenn í Ási báru bönd  og vakti þetta mikla lukku]]></description>
Mætir í heimsókn með gítarinn
Fyrir mörgum árum bjó tengdamóðir Kristjáns Sigurðssonar, Lára Þorsteinsdóttir,  í Mörk. Þá mætti hann reglulega með gítarinn til að stytta henni og fólkinu á heimilinu stundir. Eftir að Lára dó hefur Kristján samt haldið uppteknum hætti og heimsækir nú reglulega heimilisfólkið og tekur gítarinn með sér.🎸
Kristján er einstakur og nær að hrífa alla með sér í söng og gleði. Margir tala um að þetta séu allra skemmtilegustu stundirnar þeirra. 
Takk kæri Kristján fyrir að gefa þér tíma til að koma í heimsókn í öll þessi ár og gleðja okkur með nærveru þinni. ]]></description>
Frábærir tónleikar með Bubba
Það var margt um manninn í morgunstund í dag, fullur salur af fólki og eftirvænting í lofti.
Gesturinn í morgunstund að þessu sinni var hinn ástsæli Bubbi Morthens. Hann söng í um klukkustund og fór um víðan völl í lagavali. 
Með honum voru þeir Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir og Baldvin Hlynsson á píanó.
Frábærir tónleikar og þakka ykkur innilega fyrir komuna Bubbi, Halldór Gunnar og Baldvin. ]]></description>
Kærleikurinn í Ási
Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustund hér í Ási. Notaleg stund]]></description>
Harmonikkusnillingar í söngstund
Á Grund mættust tveir snillingar í morgun þegar söngstund var á Litlu og Minni Grund. Reynir Jónasson og Jón Ólafur Þorsteinsson harmonikkuleikarar tóku lagið og hrifu aðra með sér.]]></description>
Sumarhátíð á Grund
Sápukúlur, andlitsmálning, blöðrur, söngur, ilmandi popp beint úr vél og aðrar glæsilegar veitingar var á meðal þess sem boðið var uppá þegar sumarhátíð Grundar var nýlega haldin.
Vel mætt og veðrið lék við okkur.]]></description>
Sumarhátíð í Mörk
Það var kátt á hjalla í Mörk í gær þegar sumarhátíðin var hjá okkur. 
Tvíund hélt uppi stemmingunni, bornar voru fram frábærar veitingar frá eldhúsinu og svo vöktu poppvélin, andlitsmálarinn og svokallaður blaðrari verðskuldaða athygli.]]></description>
Kaffi Grund opið alla daga vikunnar
Það er skjólgott utandyra á Kaffi Grund ef fólk vill sitja í blíðunni þessa dagana og fá sér hressingu. Kaffihúsð er ekki bara opið fyrir heimilisfólk og aðstandendur heldur eru Vesturbæingar og aðrir velunnarar hjartanlega velkominir. 
Opið er inn á kaffihúsið frá Hringbraut alla daga vikunnar frá 13:00 til 17:00.]]></description>
Opið hús í Ási
Fjölmargir lögðu leið sína  á opið hús á afmælisdegi Áss í gær þegar gefinn var kostur á að  skoða nýja hjúkrunarheimilið sem er að rísa. 
Gestum var boðið upp á kaffi og kleinur og fengu leiðsögn um þetta glæsilega heimili sem stefnan er að opna í febrúar á næsta ári.]]></description>
Opið hús sunnudaginn 26. júlí
Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 74 ára afmæli Áss 
verður nýja hjúkrunarheimilið sem rís norðan Hverahlíðar opið 
gestum sunnudaginn 26. júlí frá 14.00 – 17.00.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Allir velkomnir
Gísli Páll stjórnarformaður Grundarheimilanna]]></description>
Á Grund er íslenska fjölskyldan mín
Á Grund vinnur frábært starfsfólk frá ýmsum þjóðlöndum. Ángel er frá Venesúela og hún hefur að undanförnu verið iðin við að skreyta veggina á Litlu og Minni Grund og virkjað heimilisfólkið með sér.
„Mér finnst gaman að gleðja heimilisfólkið sem hefur gefið mér svo mikið. Ástúð, góðvild, bros og faðmlög er það sem mætir mér  hér í vinnunni. Heimilisfólkið er duglegt að kenna mér íslensku og það má alveg segja að þetta er íslenska fjölskyldan mín, heimilisfólk og starfsfólk á Litlu og Minni Grund. Við erum frá ýmsum þjóðlöndum sem  hér störfum og  um daginn útbjó ég með aðstoð heimilisfólks veggspjald með þjóðfánum okkar allra.“
Ángel  segist alltaf hafa haft gaman af því að skapa og hún er með hjálp heimilisfólks að búa til fiðrildi, blóm og allskonar skraut sem þau hengja upp á veggi. Í Venesúela skreytti hún gjarnan kennslustofurnar líka en hún er kennari að mennt. 
Eiginmaður hennar og sonur komu með henni hingað til lands í leit að betri framtíð.  Sonur hennar Isaac stundar nú nám í Hagaskóla, spilar á gítar, ber út dagblöð og vinnur við garðyrkju í sumar. Hann spilar líka fótbolta og eiginmaðurinn Luis vinnur í fiskbúð í Hafnarfirði. 
Þau eru alsæl hér á landi og Ángel segist  hamingjusöm að  fá að vera nálægt frábæru fólk á Litlu og Minni Grund.]]></description>