Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Á Grund er alltaf heitt á könnunni svo heimilisfólk geti boðið gestum upp á kaffisopa.
Guðmunda sló flestar holur í höggi
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010 12:49


Það var glaðbeittur sex manna hópur heimilismanna sem heimsótti Hrafnistu í Hafnarfirði í upphafi viku til að vera með í púttmóti. Alls tóku um þrjátíu manns þátt. Frá Grund voru það fimm karlar og ein kona sem tóku þátt og svo fór að Guðmunda Bjarnadóttir sló flestar holur í höggi. Eftir mótið var boðið til verðlaunaafhendingar og þar var boðið upp á kökur og meðlæti.

 
Söng fyrir heimilisfólkið
Þriðjudagur, 03. ágúst 2010 12:13


Söngkonan Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir mætti í morgunstundina fyrir skömmu og söng fyrir heimilisfólkið við undirleik Hilmars Arnars Agnarssonar. Heiðrún þekkir sig vel á Grund því hún hefur sungið áður hjá okkur m.a. við messu í hátíðasal. Mamma hennar, Rósa G. Bjarnadóttir, hefur unnið á V-3 Grund í áratugi og hún var auðvitað mætt í morgunstundina til að hlusta á dóttur sína.

 
Sumarhátíð á Grund
Miðvikudagur, 21. júlí 2010 14:46

Þegar vel viðrar eins og undanfarið er um að gera að blása til hátíðahalda og það var gert á Grund einn góðviðrisdaginn fyrir skömmu.  Þá var grillið dregið fram og harmonikkuband Grundar lék fyrir dansi.  Auk heimilisfólksins kíktu nágrannarnir í gleðskapinn og starfsfólkið tjúttaði með heimilisfólkinu í sólinni. Frábær dagur.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 83

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg