| Á Grund er allur matur eldaður á staðnum og manneldismarkmið Lýðheilsustöðvar höfð að leiðarljósi. |
| Júní 2010 |
|
|
|
| Föstudagur, 16. júlí 2010 15:24 | |
Undirritaður samningur um rekstur hjúkrunarheimilisÍ lok þessarar viku verður undirritaður samningur milli Grundar og félags og tryggingamálaráðuneytisins um rekstur á nýju hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut 66, Mörk – hjúkrunarheimili. Á heimilinu munu búa 110 einstaklingar á ellefu litlum heimiliseiningum. Flytja fyrstu heimilismennirnir inn í ágúst næstkomandi. Heimilið verður rekið í anda Eden hugmyndafræðinnar þar sem einstaklingar halda sjálfræði sínu en búa við öryggið sem fylgir því að búa á hjúkrunarheimili. Lögð verður áhersla á heimilislegt og notalegt andrúmsloft og mun hvert þessara litlu heimila bera svip af þeim sem þar búa saman. Grund festi nýverið kaup á 78 nýjum og glæsilegum íbúðum við hlið hjúkrunarheimilisins og íbúar þar munu geta nýtt sér þá þjónustu að vild sem verður í boði á fyrstu hæð hjúkrunarheimilisins. Þar verður m.a. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, verslun með nauðsynjavöru og gjafavöru, kapella, lítið kaffihús, hársnyrtistofa, fótaaðgerðastofa, snyrti-, og nuddstofa og ýmiskonar handverksþjálfun og kennsla. Fólki sem er orðið sextugt eða eldra býðst að festa sér íbúð í þessum íbúðabyggingum með kaupréttarfyrirkomulagi og siðan mánaðarlegri leigu. Nánar um þetta á www.mörkin.is Endilega farið með fólkinu ykkar og púttiðSíðasta mót vetrarins í Boccia var haldið í síðustu viku á Hrafnistu í Hafnarfirði. Ellefu einstaklingar fóru frá Grund og sigraði liðið okkar einn leik af þremur. Á eftir var boðið í kaffi. Gönguferðir í garðinumAllir hafa gott af því að komast út undir bert loft svo þegar þið heimsækið fólkið ykkar hingað á Grund er tilvalið að bjóða fólkinu ykkar út í garð. Nú höfum við plantað þúsundum sumarplantna í garðinn og því fallegt um að litast. Munið að taka með flísteppi ef fólkið ykkar er í hjólastól. Sólarvörn og hattarÞað hefur viðrað vel hjá okkur og þegar fólkið okkar fer út í garð eða í portið okkar er gott að vera með góða sólarvörn og hatt með skyggni. Sjáið endilega til þess að fólkið ykkar hafi þetta hjá sér.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |