Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Á Grund er alltaf heitt á könnunni svo heimilisfólk geti boðið gestum upp á kaffisopa.
Maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 16. júlí 2010 15:23

Snyrtivörur og útivera

Það er orðið sumarlegt um að litast í garði Grundar. Þessa dagana er verið að gera púttvöllinn kláran fyrir sumarið. Við minnum aðstandendur á að í sumar er völlurinn opinn alla virka daga ef þið viljið fara með fólkinu ykkar að slá kúlur.

Þá minnum við fólk á að fara með heimilisfólki og setjast út í garð eða taka lítinn göngutúr og enda kannski í sólstofunni á því að fá sér kaffisopa.

Stundum nýtum við góða veðrið á sumrin og sláum upp veislu í portinu milli Grundar og Litlu Grundar og þá grillum við, bjóðum upp á ís, dönsum, sláum upp flóamarkaði eða berum fram kalda drykki. Við bætum ávallt borðum og stólum við fyrir utan sólstofuna þegar veður er gott og ítrekum að það er alltaf heitt á könnunni á Litlu Grund.

Vantar tannkrem og sjampó

Starfsfólkið vill gjarnan benda aðstandendum á að ýmsa vantar þessar venjulegu hreinlætisvörur eins og gott sjampó, næringu, almennar snyrtivörur eins og gott dagkrem, varalit eða raksápu og blöð. Endilega kannið hvað fólkið ykkar á og hvað þarf að kaupa.

Vöfflubakstur

Við bökum stundum vöfflur með kaffinu og þá kemur sér vel að fá aðstoð frá aðstandendum við baksturinn. Við bjóðum þá yfirleitt heimilisfólki að grípa með okkur í baksturinn og þá er gott að nokkrir séu að baka í einu. Endilega látið deildarstjóra vita ef þið getið séð af tíma til að baka með okkur nú eða lesa upp framhaldssögu inni á setustofum þar sem ykkar aðstandandi býr. Slíkt er vel þegið.

Heimsókn með gæludýr

Grund hefur leyfi frá heilbrigðis-yfirvöldum til að taka á móti gæludýrum í heimsókn. Ef ykkur langar að koma með gæludýr á heimilið endilega spyrjið deildarstjórann þar sem ykkar aðstandandi býr og athugið hvort heimilisfólkið hafi nokkuð á móti slíkri heimsókn.

Tilbreytni

Það lífgar upp á hversdaginn að fá heimsóknir þar sem fólk grípur í gítar eða spilar á píanó. Ef þið getið hugsað ykkur að gleðja heimilisfólk með tónlistaruppákomum, lestri, leiklist eða öðru skemmtilegu endilega látið vita og sendið póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Hún getur þá fundið tíma sem hentar.

 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg