| Á morgnana er boðið upp á stólaleikfimi í sólstofu Grundar. |
| Apríl 2010 |
|
|
|
| Föstudagur, 16. júlí 2010 15:22 | |||
Grund mun reka hjúkrunarheimili á SuðurlandsbrautFélags- og tryggingamálaráðuneytið hefur tekið tilboði Grundar í rekstur nýs hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut. Heimilið verður frá upphafi rekið með það að markmiði að heimilismenn taki sjálfir ákvarðanir sem snerta daglegt líf þess og haldi þannig sjálfstæði sínu en búi við það öryggi sem fylgir því að búa á hjúkrunarheimili. Þeir verða hvattir til að taka þátt í daglegu lífi á heimili sínu eftir getu og áhuga og markmið Eden hugmyndafræðinnar verða höfð að leiðarljósi sem er að útrýma leiða, einmanaleika og vanmáttarkennd úr lífi fólksins en veita því jafnframt fyrsta flokks hjúkrunarþjónustu. Á hjúkrunarheimilinu verða ellefu lítil heimili en íbúar hvers heimilis eru tíu. Hver einstaklingur er með 25 fermetra herbergi með snyrtingu og síðan er á hverju tíu manna heimili rúmgóð setustofa, eldhús og tvennar svalir. Það verða því hundrað og tíu einstaklingar sem munu búa á heimilinu og fyrstu heimilismennirnir flytja inn þann 1. ágúst næstkomandi. Loka á hjúkrunarheimilunum á Vífilsstöðum og í Víðinesi og er fyrirhugað að heimilismenn þaðan flytji á Suðurlandsbraut. Starfsfólki þar mun einnig standa til boða að starfa á nýja heimilinu. Fóstbræður sungu sig inn í hjörtu fólksinsÞað hefur verið árviss viðburður í áratugi að félagar úr Fóstbræðrum haldi tónleika fyrir heimilisfólkið á Grund. Eftir lokatónleika sína á vorin mæta þeir í kjól og hvítt í hátíðarsalinn og að loknum tónleikum fyrir heimilisfólkið halda þeir árshátíð í Fóstbræðraheimilinu. Það ríkir alltaf tilhlökkun þegar þeir tilkynna komu sína því þeir eru iðulega á sjöunda tug talsins og söngurinn ómar um allt húsið. Ekki spillir fyrir að þeir taka iðulega lög sem fólkið okkar þekkir og kann. Hálsfestar, slæður, hljóðfæriVið höfum verið að kynna okkur hugmyndafræði danska iðjuþjálfans Jane Verity sem hefur fengið heitið Spark of life en hún er aðallega hugsuð fyrir fólk sem er með minnissjúkdóma. Hrefna Brynja Gísladóttir iðjuþjálfi á Akureyri hefur kynnt sér þessi fræði og kom hingað á Grund nýlega til að kynna fyrir starfsfólki okkar hvernig vekja má lífsneistann á ný með þessum einstaklingum. Starfsfólkið er mjög áhugasamt að byrja að vinna með þessar hugmyndir og því söfnum við nú ýmsu sem getur nýst okkur við þessa vinnu. Sumt tengist líka Eden hugmyndafræðinni sem við höfum undanfarið ár verið að taka úr þætti og tileinka okkur í starfi. Í heimsókn á ÞjóðminjasafniðIðjuþjálfun bauð heimilisfólki á sýninguna Ævispor í Þjóðminjasafninu. Sautján heimilismenn fóru frá Grund og var almennt mikil ánægja með ferðina. Á sýningunni voru útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur sem hún hefur unnið með gömul handrit og forn útsaumuð klæði að fyrirmynd. Eftir sýninguna var heimilisfólki boðið upp á kaffiveitingar á kaffihúsi safnsins. Bannað að leggja bílumBorið hefur á því að fólk leggi bíl sínum inni í porti Grundar þegar ekið er í portið vestan megin við heimilið. Fólki er vinsamlegast bent á að það er í lagi að hleypa fólki þar út við lyftuna en af öryggisástæðum er bannað að leggja bíl þar.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |