| Á Grund er sundlaug þar sem boðið er upp á vatnsleikfimi alla virka daga. |
| Mars 2010 |
|
|
|
| Mánudagur, 12. apríl 2010 15:37 | |||
Nakinn maður og páskaeggjabingóVorið er á næsta leyti og við hér á Grund erum byrjuð að fara í auknum mæli út með heimilisfólkinu til að það geti notið þess að sjá krókusana sem prýða garðinn okkar núna. Við hvetjum ykkur aðstandendur góðir til að fara yfir fataskápinn og passa að fólkið ykkar hafi góðan skjólfatnað og góða skó. Það er líka ágætt að eiga flísteppi til að hafa yfir sér ef fólkið ykkar er í hjólastól. Páskaeggjabingó á laugardagNæsta laugardag stendur aðstandendafélag Grundar fyrir árlegu páskaeggjabingó. Þá koma aðstandendur og heimilisfólk saman í hátíðarsal á meðan húsrúm leyfir og spila bingó. Ömmu- og afabörn hafa haft sérstaklega gaman af þessu því spilað er um páskaegg. Fjörið hefst klukkan 14 laugardaginn 27. mars. Þið eruð hjartanlega velkomin með fólkinu ykkar. Grund býður upp á kaffiveitingar. Í leiðinni hvetjum við aðstandendur til að gefa sig fram við þá sem verða að vinna í bingóinu ef þeir hafa áhuga á að starfa í félaginu. Með öflugu liði aðstandenda er hægt að standa fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum eins og sumarferðum, grillveislu, vöfflukaffi, ferð í grasagarðinn, kaffihúsaferð, bingói, aðventukvöldi og svo mætti áfram telja. Nú vantar okkur í hópinn áhugasama einstaklinga sem eru til í að koma í sjálfboðavinnu. Það má einnig senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Breytingar í borðstofuUndanfarnar vikur höfum við verið að gera breytingar í borðstofu á 2. hæð Grundar. Við breyttum fyrirkomulaginu þannig að nú borðar vesturendinn á eftir austurendanum. En aðallega vorum við að breyta því hvernig maturinn er fram reiddur. Nú er fólk ávallt spurt hvernig það vilji hafa hlutina, það er farið með það að hlaðborði þar sem það velur sér morgunverð, það er spurt í hádeginu hversu mikið það viljið fá og með kaffinu hefur það val. Þetta hefur gefist alveg frábærlega og fólk sem við héldum að vildi bara fá sinn hafragraut og engar refjar er nú alveg tilbúið að prófa eitthvað nýtt á morgnana. Þá vorum við að fá falleg blóm í hús sem prýða borðin og keyptum líka nokkrar tegundir af diskamottum. Allt skapar þetta skemmtilegra andrúmsloft og starfsfólkið segir alla vera mjög ánægða með þessar breytingar. Við höfum líka verið að breyta matseðlinum og eins og aðstandendur hafa kannski tekið eftir er ávallt hægt að sjá kvöldmatseðil núna sem og auðvitað hádegisverðarseðil. KertaafgangarÞað styttist í páska og þessa dagana er heimilisfólkið okkar að útbúa páskakerti og fermingarkerti. Iðulega er fólkið svo að gefa aðstandendum sínum kertin en einhver kerti eru líka til sölu, bæði í versluninni okkar og í vinnustofunni á 4. hæð í austurálmu Grundar. Við þiggjum alltaf með þökkum kertaafganga í öllum litum. Þeir eru bútaðir niður og notaðir í kertagerðina. Starfsfólkið tekur við kertunum og kemur þeim á vinnustofu heimilisins. Þetta á reyndar við annað föndurefni líka, garn er mjög vel þegið og annað sem nota má í handverk. Nakinn maður og annar í kjólfötumÞað var skemmtileg sýningin sem leikfélagið Snúður og Snælda bauðst til að setja upp í hátíðarsal Grundar nýlega. Alls komu um sjötíu manns til að horfa á leikhópinn fara á kostum í þessari sýningu. Það var frábært að geta sett leikritið upp á heimilinu því með því móti var fleirum gert kleyft að njóta leikhússýningar en ella.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |