|
Grund hlýtur lyftubúnað að gjöf |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 14:33 |
|

Fyrir nokkru barst Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund lyftubúnaðurinn Sara 3000 sem er gjöf frá Sigríðarsystrum í Rb.st. nr.4. Sigríður I.O.O.F.
Að ósk Sigríðarsystra var lyftubúnaðurinn settur upp á deild A-2 þar sem ein Sigríðarsystra, Íris Ingibergsdóttir er heimiliskona. Mun Íris njóta góðs af þessari rausnarlegu gjöf auk annarra heimilismanna á A-2 og víst er að slíkur búnaður mun létta undir með starfsfólki heimilisins.
Sigríðarsystrum er innilega þökkuð þessi höfðinglega gjöf.
|