Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Í handverksstofu Grundar getur fólk keypt allskonar fallega muni sem eru eftir heimilisfólk.
Grund kaupir 78 þjónustuíbúðir við Suðurlandsbraut Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 29. janúar 2010 09:46


Félag í eigu dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Grund - Mörkin ehf, hefur fest kaup á 78 íbúðum að Suðurlandsbraut 58-62. Þar verður boðið upp á fyrsta flokks þjónustuíbúðir fyrir fólk frá sextugu. Stærð íbúðanna er allt frá 80 m2 og upp í um 140 m2. Þær eru tilbúnar til sölu og afhendingar með vönduðum innréttingum og gólfefnum.

Um íbúðaréttarfyrirkomulag verður að ræða og verði stillt í hóf, enda markmið Grundar að gera flestum kleyft að ráða við það fjárhagslega að flytja í þessar fallegu íbúðir.

Til að gefa verðhugmynd má nefna að fyrir 80 m2 íbúð er greitt 7,9 milljónir króna í íbúðarréttargjald sem síðar er endurgreitt við lok samnings eftir nánari skilmálum og mánaðarleg leiga um 116.000 krónur, auk hússjóðs.


Ásmundur Stefánsson bankastjóri Landsbankans, lýsir ánægju sinni með aðkomu Grundar að þessu verkefni: „Bankinn er ánægður með þá niðurstöðu sem fengist hefur. Við höfum rætt við fjölda aðila undanfarna mánuði sem lýst hafa áhuga á eignunum og sumir hafa sett fram formleg tilboð. Á endanum náðust samningar við Grund sem við teljum vera vel viðunandi fyrir bankann og hagsmuni hans. Það er mjög ánægjulegt að Grund, sjálfseignarstofnun og líknarfélag sem einbeitir sér að öldrunarþjónustu, sé orðinn eigandi þessara íbúða og ekki síður að nú færist í þær það líf sem sárlega hefur skort.“

„Íbúðirnar eru kærkomin viðbót við annars blómlegan rekstur dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar við Hringbraut en þar hefur þungamiðja starfseminnar verið í Reykjavík“, segja framkvæmdastjóri Grundar - Markar ehf. Gísli Páll Pálsson og Júlíus Rafnsson stjórnarformaður félagsins. Jafnframt rekur Grund dvalar- og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði. „Við væntum þess að um 120 manns muni búa hér hjá okkur í íbúðunum og gleðjumst yfir því að geta boðið þessu fólki stuðning með þjónustuframboði sem mun skapa því aðstæður til að varðveita sín lífsgæði og geta verið heima sem lengst. Þessi kaup marka tímamót hjá Grund því með þessum kaupum fær heimilið tækifæri til að bjóða fólki sem komið er yfir sextugt upp á glæsilegar þjónustuíbúðir á viðráðanlegu verði. "

Ráðist verður á næstunni í að reisa þjónustubyggingu austan við íbúðablokkirnar og til stendur að ræða við Reykjavíkurborg um að koma að þeirri framkvæmd með Grund. Í þjónustubyggingunni verður boðið upp á fjölbreytta þjónustu.

Þetta er stærsta fjárfesting Grundar í áttatíu ár. Capacent Glacier var ráðgjafi Grundar. Dótturfélag Landsbankans er seljandi.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þetta nánar, vilja skoða íbúðirnar eða fá upplýsingar um verð geta haft samband í síma 530-6100 til klukkan 15:00 alla virka daga eða með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Sjá einnig heimasíðu www.mörkin.is


 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg