| Alla föstudaga eru harmonikkuböll á Grund. |
| Janúar 2010 |
|
|
|
| Fimmtudagur, 14. janúar 2010 10:49 | |||
Myndbandsskeið á heimasíðunniGrund hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að sýna myndbandsskeið frá heimilislífinu á Grund þegar eitthvað skemmtilegt er um að vera. Endilega fylgist með og skoðið reglulega heimasíðuna okkar www.grund.is. Þar eiga líka að vera matseðlar heimilisins, allar almennar upplýsingar og reglulega setjum við inn fréttir af starfinu á Grund. Verðskráin lækkuðVerðskráin á snyrtistofunni á Grund lækkaði um áramótin. Inga, sem er verktaki hér á heimilinu, býður nú handsnyrtingu með lakki á 3.500 krónur, plokkun og litun á 2.500 krónur og andlitsvax á efri vör eða höku á 1.500 krónur svo dæmi séu tekin. Verðlisti liggur frammi á deildum og deildarstjórar panta fyrir heimilisfólk sé beðið um það. Við minnum á að heimilisfólk eða aðstandendur geta líka komið á framfæri við deildarstjóra eða starfsfólk deilda óskum um þjónustu hársnyrtis og fótaaðgerðarfræðings en á heimilinu starfa tveir hársnyrtar og fótaaðgerðarfræðingur kemur á Grund tvisvar í viku. Fólkið fer brátt út að viðra sigNú er daginn tekið að lengja og eflaust fer heimilisfólkið að fara út með starfsfólkinu þegar ekki er mjög kalt í veðri. Það er nauðsynlegt að heimilisfólk eigi hlý föt og góða skó og ef heimilismaður er í hjólastól er gott að hann eigi hlýtt teppi sem hægt er að breiða yfir sig þegar farið er út undir bert loft. Við hvetjum líka aðstandendur til að fara með heimilisfólkið rúnt í kringum húsið ef veðrið er gott eða bjóða því í bíltúr. SjálfboðaliðarÞað er alltaf þörf fyrir sjálfboðaliða á Grund og þegar eru nokkrir sem sinna slíku starfi, heimsækja heimilisfólk, koma með gæludýr í heimsókn eða aðstoða við annað sem til fellur. Við hvetjum ykkur til að íhuga það eða benda vinum á að gerast sjálfboðaliði á Grund og hafa samband við sr. Auði Ingu heimilisprest sem er með netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, Svölu djákna sem er með netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða Guðbjörgu samskiptafulltrúa heimilisins sem er með netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Þar að auki er alltaf vel þegið að þið bjóðið fram krafta ykkar á deild þar sem ykkar fólk býr, bjóðist til að lesa á deildinni, koma með gítarinn, spila spurningaspil, bjóða upp á bíó og snakk eða gera eitthvað annað skemmtilegt. Hafið samband við deildarstjóra eða starfsfólk viðkomandi deildar ef áhugi er fyrir hendi. Spil í geymslunni?Ef þið eigið myndaspil eða spurningaspil sem lent hefur í geymslunni þá kæmi það að góðum notum á deildinni þar sem ykkar aðstandandi er. Starfsfólkið getur farið með heimilisfólki í að spila þegar tími gefst til. Hreyfing skiptir máliÞegar fólkið okkar er orðið lasburða skiptir miklu að halda við hreyfifærni. Þetta er gert hjá okkur í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun heimilisins en nú langar okkur að virkja heimilisfólkið þegar það er inni í setustofum heimilanna og færi gefst.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |