| Alla virka daga er heimilisfólki boðið upp á morgunstund í setustofu heimilisins þar sem sungið er, dansað, lesið uppúr blöðum dagsins og boðið upp á kaffisopa. |
| Desember 2009 |
|
|
|
| Miðvikudagur, 30. desember 2009 10:54 | |||
Bakstur og söngur á aðventuÞað er kominn jólalegur blær á Grund. Alla virka morgna er verið að baka smákökur í vinnustofunni og húsið ilmar af nýbökuðum kökum. Kórar og einsöngvarar koma og syngja af og til fram að jólum, fólk kemur og les uppúr nýjum bókum og það er búið að skreyta víða innandyra. Þann 10. desember verður jólahlaðborð bæði fyrir heimilisfólk og starfsfólk. 16. desember verður jólabingó fyrir heimilisfólk, við erum byrjuð að dansa aðeins við jólatóna og matseðillinn okkar fer að taka mið af stórhátíðinni sem í vændum er. Allar auglýsingar um þessa viðburði hér að ofan verða hengdar upp á upplýsingatöflur deildanna. LaufabrauðsbaksturÞann 15. desember verður áhugasömu heimilisfólki gefinn kostur á að baka laufabrauð í vinnustofu heimilisins. Það er alltaf mikil stemning þegar fólk safnast saman og sker út laufabrauð. Endilega látið deildarstjórana vita ef aðstandendur ykkar hafa áhuga bæði á smákökubakstri og laufabrauðsútskurði. Messuhald um jól og áramótÁ aðfangadag verður guðsþjónusta klukkan 16. Prestur er séra Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur, söngstjórn og orgelleik annast Kjartan Ólafsson og Elín Ósk Óskarsdóttir syngur einsöng. Á jóladag klukkan 14 sjá séra Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur og Svala Sigríður Thomsen djákni um guðsþjónustuna. Söngstjórn og orgelleik annast Kjartan Ólafsson. Á gamlársdag er messað klukkan 14. Prestur er séra Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur og kór Fríkirkjunnar syngur. Þess má geta að rétt fyrir jólin berum við út til allra hátíðamatseðil Grundar og upplýsingarnar hér að ofan um messuhald. JólagjafirMargir aðstandendur velta fyrir sér jólagjöfum handa fólkinu sínu sem býr hér á Grund. Hér koma nokkrar uppástungur frá starfsfólkinu: Náttkjóll, náttföt, inniskór, útiskór, velúrgallar, flíspeysa, ilmvatn, geisladiskar, DVD-mynd ef viðkomandi er með slíkt tæki hjá sér, mýkjandi handáburður og fótakrem, fjölskyldumyndir, smákökur í litlu boxi eða ef um konu er að ræða, naglalakk eða varalit. JólahaldEf heimilisfólk eyðir jólunum hjá aðstandendum þarf starfsfólk að fá að vita um ferðir þess. Það er líka mjög vel þegið að fá aðstoð við að koma heimilisfólki í háttinn yfir hátíðirnar þegar fólkið er að koma frá aðstandendum sínum. Það er mikið álag á starfsfólki þessa daga þetta kæmi sér mjög vel. Engin kertaljós á herbergjumSökum eldhættu biðjum við aðstandendur að gefa ekki heimilisfólki kertaskreytingar á jólunum.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |