| Grund á og rekur Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði. |
| Nóvember 2009 |
|
|
|
| Fimmtudagur, 19. nóvember 2009 16:27 | |||
Eftirminnileg heimsóknÞað ríkti frábær stemning á afmæli Grundar í lok október þegar stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson heiðraði heimilið með nærveru sinni sem og Þóra Einarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson. Marco Beluzzi lék á píanó. Þau tóku íslensk sönglög sem og erlendar perlur úr óperubókmenntunum. Hátíðasalurinn var fullur útúr dyrum og eftirvæntingin sem hafði ríkt meðal heimilisfólksins breyttist í ósvikna gleði þegar húsið ómaði af þessum fallega söng. Á afmælisdaginn eru ávallt dúkuð borð í hátíðasalnum og boðið upp á heitt súkkulaði og heimabakað þjóðlegt bakkelsi. GerðubergskórinnNæstkomandi mánudag ætlar Gerðubergskórinn að heiðra okkur með nærveru sinni og syngja í hátíðasalnum fyrir heimilisfólk klukkan 15.30. Endilega hvetjið fólkið ykkar til að koma og hlýða á fallegan söng. Garnafgangar vel þegnirNýverið voru settar körfur með garni og prjónum á allar deildar. Meiningin er að heimilisfólk prjóni með aðstoð starfsfólksins renninga sem síðan verða saumaðir saman í teppi. Viðtökurnar hafa verið góðar og nú er svo komið að við þiggjum garnafganga frá aðstandendum með þökkum ef þeir liggja einhversstaðar ónotaðir. Best er að koma þeim til deildarstjóra sem koma þeim þá áfram í vinnustofuna eða fara með þá beint þangað á A-4. KertaafgangarVið búum til kerti með heimilisfólki í vinnustofu heimilisins og notum m.a. afganga sem okkur berast í kertagerðina. Nú fyrir jólin væri vel þegið að fá kertastubba ef til eru. Vinsamlegast komið þeim þá til deildarstjóra eða beint í vinnustofuna á A-4. JólabasarÍ lok mánaðarins, nánar tiltekið laugardaginn 28. nóvember ætlum við að vera með árlegan jólabasar okkar frá klukkan 13-16. Þar verða til sölu handunnir munir eftir fólkið okkar, sokkar, vettlingar, púðar, skart og ýmislegt fleira. Boðið verður upp á kaffi í húsnæði iðjuþjálfunar á A-4. FyrirbænastundirVikulega eru nú haldnar fyrirbænastundir í hátíðarsal Grundar og hefjast þær klukkan 11.30 á þriðjudögum. Fólk getur komið fyrirbænarefnum til sr. Auðar Ingu Einarsdóttur í gegnum deildarstjóra. Þar þarf að koma fram fyrir hverjum og fyrir hverju er beðið. Upplestur og söngurNú þegar aðventan nálgast fáum við margar skemmtilegar heimsóknir og í morgun kom ungur höfundur, Ragnar Jónasson, og las úr nýútkominni bók sinni Fölsk nóta. Heimilisfólk kann vel að meta svona heimsóknir sem lífga upp á tilveruna. Á næstunni munum við taka á móti höfundum sem vilja koma í heimsókn og lesa uppúr bókum sínum, kórar heiðra okkur með söng, börn koma og syngja eða leika á hljóðfæri og svo mætti áfram telja. Ef þið aðstandendur góðir eru í kór eða að gefa út bækur nú eða hafið eitthvað skemmtilegt fram að færa þá bjóðum við ykkur innilega velkomin til að deila því með heimilisfólki. Hægt er að koma fram í morgunstund sem er alla virka morgna frá 9-11 hér á Grund nú eða á öðrum tíma ef það hentar ekki. Guðbjörg á skrifstofu Grundar tekur niður slíkar heimsóknir. Símanúmer hennar er 5306181 og netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |