| Á Grund er sundlaug þar sem boðið er upp á vatnsleikfimi alla virka daga. |
| Október 2009 |
|
|
|
| Fimmtudagur, 19. nóvember 2009 16:25 | |||
Sláturgerð og dúettÞað er kappklætt heimilisfólkið sem fer út að viðra sig hérna í portinu okkar þessa dagana. Við viljum benda aðstandendum á að skoða hvort fólkið þeirra sé ekki með nóg af hlýjum fötum því þó það sé kalt þá er gott að fá sér ferskt loft af og til. Nýr heimilispresturVið messu síðastliðinn sunnudag setti sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur, sr Auði Ingu Einarsdóttur í embætti heimilisprests hér á Grund. Hún tók við embættinu af sr. Sveinbirni Bjarnasyni sem lætur af störfum að eigin ósk. Vetrardagskráin er hafin hjá sjúkraþjálfuninni, iðjuþjálfuninni og íþróttaþjálfaranum okkar. Við hvetjum ykkur til að benda heimilisfólki á boccia, Tai Chi jafnvægisæfingar tvisvar í viku, grindar-botnsæfingarnar vikulegu, kertagerðina á morgnana, vinnustofuna alla virka daga eftir hádegi og auðvitað morgunstundina okkar alla virka morgna. Það er ýmislegt fleira í gangi, vinafundir, framhaldssögulestur, gönguferðir og fleira sem fólkið ykkar hefur e.t.v. gaman af. Kettlingur og hænur á nýja heimilinuNýlega var nýtt heimili Grundar í Hveragerði, Bæjarás, opnað formlega en heimilið hefur verið starfrækt í um mánuð. Boðið var til veislu í tilefni dagsins, heimilisfólk og starfsfólk hjálpaðist að við baksturinn og annan undirbúning. Heimilismaðurinn Haukur Sigurjónsson klippti á borðann og Gísli Páll Pálsson framkvæmdastjóri í Ási hélt ræðu. Þá leiddi Steinunn Svanborg Gísladóttir, forstöðukona Bæjaráss, fólk í allan sannleika um lífið í Bæjarási. Þar búa nú fjórir heimilismenn í hjúkrun, einn einstaklingur kemur í hvíld á sex vikna fresti og fjórir til fimm einstaklingar úr Hveragerði eru þar í dagdvöl. Í Bæjarási býr einnig kettlingurinn Hnoðri og hænur hafa aðsetur í upphitaðri "hænsnahöll" í garðinum. Þá kemur daglega hundur í heimsókn. Bæjarás er fyrsta heimilið hér á landi sem byggt er frá grunni á svokallaðri Eden hugmyndafræði. Á Akureyri hafa öldrunarheimilin hafið innleiðingu hugmyndafræðinnar, í Færeyjum eru öll öldrunarheimili rekin í þessum anda og í Bandaríkjunum eru Eden heimilin nú um fimm hundruð. Víða um Evrópu spretta upp heimili sem rekin eru í þessum anda og í Danmörku eru þau þegar orðin þrjátíu. SláturgerðVið verðum með sláturgerð í dag og á morgun. Vambirnar voru saumaðar í dag og á morgun verða þær fylltar og saumað fyrir. Að lokum mun svo heimilisfólkið gæða sér á slátrinu. Þeir heimilismenn sem hafa áhuga geta tekið þátt. Við bendum ykkur á að láta starfsfólkið vita ef þið haldið að ykkar aðstandendur hafi gaman af sláturgerðinni. Oft nægir líka að koma bara og fylgjast með, vera innanum fólkið í slátrinu. Dúett skemmtir fólkinuFimmtudaginn 8. október þeir Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson heimilisfólki en þeir kalla sig Dúett. Af þeim sökum verður morgunstundin þann morgun í hátíðarsalnum og hún hefst að venju klukkan 9 og er til ellefu. Þeir félgar mæta svo um tíuleytið. FlóamarkaðurDagana 3. og 4. nóvember næstkomandi verðum við með flóamarkaðinn okkar í hátíðarsalnum. Þar kennir ýmissa grasa og bæði starfsfólk og heimilisfólk geta þar keypt ýmiskonar fatnað, búsáhöld, bækur og einstaka sinnum koma líka húsgögn á markaðinn. Pyngjan léttist ekki verulega við kaupin því jakkafötin og kápur kosta 300-500 krónur, skór frá 100 krónum, tvær slæður á 50 krónur og svo framvegis. Allir skemmta sér verulega vel og gera góð kaup.
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |