Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Við bjóðum fólkinu okkar tvisvar í viku upp á handavax og grjónapúðadekur.
Starfsmannastefna Grundar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:45

Grund er elsta dvalar- og hjúkrunarheimili landsins og frá upphafi hefur það verið markmið Grundar að veita heimilismönnum bestu aðhlynningu sem kostur er á, í heimilislegu og snyrtilegu umhverfi. Það markmið næst á hinn bóginn ekki nema með samvinnu allra sem á heimilinu starfa. Stöðugleiki í starfsmannahópnum er mikilvægur og góðir starfsmenn eru mikilvægasta auðlind Grundar.

Ráðningar

Grund leitast við að ráða til sín starfsfólk sem býr yfir þroska, reynslu, ábyrgðartilfinningu, reglusemi og heiðarleika. Trúnaður og traust eru lykilatriði. Grund leggur áherslu á mikilvægi þess að starfsmenn hafi fjölbreytta reynslu og menntun og þeir séu á öllum aldri. Fólk sem komið er yfir miðjan aldur er einnig hvatt til að bætast í starfsmannahópinn. Ráðningarsamningur er skriflegur og starfslýsing fylgir ráðningarsamningi. Karlar og konur hafa jafnan rétt hvað snertir starf á Grund, starfsframa og samþættingu starfs og fjölskyldulífs.

Samskipti

Starfsmenn skulu sýna heimilisfólki virðingu og hlýtt viðmót og veita faglega þjónustu. Þeir eru bundnir þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og skulu virða einkalíf heimilisfólksins svo og persónu, skoðanir og þekkingu samstarfsfélaga sinna. Framkoma sem veldur öðum vanlíðan eða óöryggi verður ekki liðin. Starfsmenn skulu vel upplýstir um málefni sem eru á döfinni og fá í hendur upplýsingahandbók þegar þeir hefja störf á Grund. Grund keppir að því að skapa traust milli starfsmanna og stjórnenda. Starfsmaður er hvattur til að kynna sér stjórnskipulag Grundar og hver er hans næsti yfirmaður. Þar að auki er hægt að fá viðtal hjá forstjóra, hjúkrunarforstjóra, starfsmannastjóra og samskiptafulltrúa Grundar.

Heilsuvernd

Grund styrkir starfsmenn til íþróttaiðkunar og nemur styrkurinn 8.000 krónum á ári miðað við fullt starf gegn framvísun kvittunar. Starfsmaður skal hafa unnið í sex mánuði áður en hann sækir um styrk.

Vinnufatnaður

Grund útvegar starfsmönnum vinnufatnað og ætlast er til að starfsmenn klæðist honum og séu ætíð snyrtilegir til fara.

Kjaramál

Hver starfsmaður gerir ráðningarsamning við heimilið og eru fyrstu þrír mánuðir í starfi reynslutími. Eftir þann tíma er starfsmaður fastráðinn nema annað sé tilgreint í ráðningarsamningi. Grund greiðir laun samkvæmt kjarasamningum hvers stéttarfélags og fylgir þeim ákvæðum sem sett eru í samninga.

Starfsþróun og fræðsla

Grund leitast við að gefa starfsmönnum tækifæri á framgangi í starfi með fræðslu og þjálfun og skapa þeim skilyrði til virkrar endurmenntunar. Starfsmönnum gefst kostur á að sækja námskeið og fræðslu innan heimilisins sem utan til að auka þekkingu sína og faglega hæfni og þróast í starfi. Grund tekur þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar en ætlast jafnframt til að þeir sem hafa aðgang að starfsmenntunarsjóðum sæki um styrki þar. Starfsmenn eru hvattir til að afla sér þekkingar og miðla til annarra samstarfsmanna. Símenntun er jafnt á ábyrgð starfsmanns og yfirmanns. Stefna Grundar er að koma á formlegum starfsmannasamtölum við næsta yfirmann einu sinni á ári.

Starfslok og starfslokaviðtöl

Starfsmenn hætta störfum á Grund það ár sem þeir verða sjötugir. Hafi starfsmenn hug á að vinna áfram og áhugi er á því af hálfu Grundar er gerður samningur um lausráðningu og sá samningur endurskoðaður á hálfs árs fresti. Starfslokaviðtöl standa starfsmönnum til boða.

Viðvera og vinnutími

Grund leggur upp úr því að starfsfólk mæti á umsömdum tímum og virði vinnutíma. Starfsmönnum er skylt að stimpla sig þegar mætt er til vinnu og farið er heim. Ekki er leyfilegt að stimpla kort annarra starfsmanna og varðar það áminningu ef starfsmaður verður uppvís að slíku. Það er á ábyrgð yfirmanns að fylgjast með mætingum og grípa inn í ef útaf bregður.

Einkalíf og vinna

Grund styður starfsmenn til samræmingar starfs og fjölskyldulífs með sveigjanlegum vinnutíma þar sem það á við og hlutastörfum. Grund hefur ávallt verið annt um velferð starfsfólksins og leitast við að veita því aðstoð og stuðning við erfiðar aðstæður.

Sálgæsla starfsfólks

Starfsmenn geta leitað til heimilisprests eða djákna sé þess óskað. Boðið er ennfremur upp á vikulega slökun og bænastundir með starfsmönnum.

 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg