| Reglulega er spilað bingó á Grund og daglega spilar heimilisfólk vist eða bridge. |
| Júlí 2009 - Þórhildur Helga Sólbjörnsdóttir |
|
|
|
| Fimmtudagur, 13. ágúst 2009 15:35 | |||
|
Svo komst þú líka færandi hendi um daginn og gafst deildinni þinni gítar? „Já Gurra (deildarstjóri á V-2) hafði verið að tala um að það væri gaman að eiga gítar á deildinni því það kemur fyrir að aðstandendur kunni að spila og geti þá gripið í hann. Ég vissi að heima hjá mér væri til gítar sem systir mín lærði á fyrir mörgum árum og enginn væri að nota núna. Þegar ég var búin að spyrja fólkið mitt hvort það væri ekki í lagi að gefa hann á Grund kom ég með hann og Gurra sá til þess að það væri aðeins flikkað upp á hann. Núna er hann hérna og sonur einnar heimiliskonu kemur t.d. reglulega og leikur á hann fyrir fólkið og hann Stefán sem vinnur hérna grípur líka í gítarinn af og til.“ Þórhildur kláraði stúdentsprófið sl. vor frá Fjölbraut í Garðabæ og hefur unnið á V-2 í fullu starfi síðan. Hún býr í Þorlákshöfn svo það er spölur að fara til vinnu. „Ég er svo heppin að vinkonur og venslafólk hefur skotið yfir mig skjólshúsi ef ég hef verið á morgunvöktum eða að vinna lengi frameftir svo þetta hefur ekki verið neitt mál. Ég hef líka haft aðstöðu hjá systur minni. Svo er ég orðin vön að keyra bílinn minn á milli því ég var í Fjölbraut í Garðabæ.“
En nú ert þú að hætta hjá okkur eftir nokkra daga? „Já fyrir tilviljun komst systir mín að því að vinkonu hennar vantaði „au pair“ eða barnapíu en hún býr í San Francisco í Bandaríkjunum. Þar sem ég er búin með stúdentsprófið langaði mig að breyta eitthvað til og fara til útlanda svo þetta small allt saman. Nú er þetta frágengið og ég fer út eftir tvær vikur og verð að passa tvö börn, eins árs og fjögurra ára. Ég hef ekki hugmynd um það hversu lengi ég verð... það kemur bara í ljós. Nokkrum vikum eftir að ég fer út kemur mamma mín í heimsókn en móðursystir hennar býr í borginni og hún ætlar að slá tvær flugur í einu höggi, heimsækja hana og mig í leiðinni.“
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |