Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Miðvikudagar eru sannkallaðir dekurdagar á Grund.
Sjúkraþjálfun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:26

Heimilisfólki Grundar stendur til boða sjúkraþjálfun þegar þess gerist þörf. Á endurhæfingardeildinni í vesturálmunni er m.a. góður tækjasalur og sundlaug. Þar starfa nú þrír sjúkraþjálfarar, tveir sérhæfðir aðstoðarmenn og íþróttafræðingur. Markmið sjúkraþjálfunar er að efla færni heimilismanna við hreyfingar daglegs lífs og bæta líðan. Aðferðirnar eru mismunandi og ráðast af greiningu á hreyfigetu hvers og eins, sjúkdómum og orsökum hreyfihindrana. Markviss þjálfun og hreyfing eykur lífsgæði manna. Með aukinni líkamsfærni eykst sjálfstæði og sjáfræði einstaklingsins. Einstaklingsmiðuð meðferð og ráðgjöf er ákveðin af  sjúkraþjálfara í samvinnu við lækni og deildarstjóra. Meðferð í sjúkraþjálfun getur verið þjálfun til að efla hreyfifærni, verkjameðferð, endurhæfing eftir sjúkdóma og brot, útvegun hjálpartækja og fræðsla um skófatnað, húsbúnað og svo framvegis.

Sjúkraþjálfarar bjóða einnig upp á hópþjálfun. Nú gefst heimilisfólki tækifæri til að sækja tíma í kínverskri leikfimi en margar rannsóknir benda til að ástundum T'ai chi minnki hættu á byltum og beinbrotum og stuðli að bættu jafnvægi og samhæfingu. Sjúkraþjálfarar halda reglulega námskeið varðandi starfsstellingar og vinnuvernd fyrir starfsfólk. Sjúkraþjálfarar Grundar eru Ágústa Sigfúsdóttir, Anna Kristín Kristjándóttir og Fríða B. Andersen. Sérhæfðir aðstoðarmenn eru Írena McCabe og Maria Manuel.

 

100_0984.jpg

 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg