Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Allt kaffimeðlæti er bakað á Grund og við notum engar transfitusýrur í baksturinn.
Apríl 2009 - Kjartan Ólafsson Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 03. maí 2009 15:39

Fjölhæfi söngstjórinn á Grund

Það eru tuttugu ár síðan Kjartan Ólafsson kom til starfa sem söngstjóri heimilisins, örfáum árum eftir að hann lauk framhaldsnámi í söng og kórstjórn í Mílanó á Ítalíu. „Ég hafði verið að starfa við söng- og tónmenntakennslu þegar Einar Sturluson kom að máli við mig og spurði hvort ég væri ekki til í að koma sem tónlistarmaður og organisti á Grund. Á þessum tíma var kominn vísir að morgunstund og hér var auðvitað messuhald og það vantaði starfskraft til að sinna hvoru tveggja. Ég hafði í námi mínu miðað við að fara út á land og sá fyrir mér að þar þyrfti ég að geta sinnt ýmsu og hef því fjölbreyttan bakgrunn. Ég byrjaði í organista og píanónámi, fór síðan í Söngskólann og lauk þaðan námi sem söngkennari og kórstjóri árið 1984. Þaðan lá leiðin til Mílanó þar sem ég tók masterspróf í þeim fræðum.“

 

Þú hefur vafalaust gert ýmsar breytingar á morgunstundinni um árin?

„Já þegar ég kom að þessu hófum við stundina á söng, svo var lesið í um korter og stundinni lauk með söng. Nú í dag er þetta með allt öðrum hætti og ég hef í samvinnu við starfsfólkið mitt verið að þróa morgunstundina og laga að fólkinu okkar. Við erum með lestur úr dagblöðum, lestur framhaldssögu, við fáum góða gesti í heimsókn, gerum léttar leikfimiæfingar, drekkum saman kaffisopa og dönsum jafnvel við harmonikkuleik þegar þannig liggur á okkur. Þar að auki hefur starfið verið að þróast, við erum farin að heimsækja vissar deildir og bjóða þar upp á létta tónlist og hreyfingu, sérstaklega hjá þeim sem hafa átt erfitt með að komast í morgunstundina.“

Morgunstund Grundar í Þrándheimi

Er messuhald með svipuðum hætti og þegar þú hófst hér störf?

„Messuhaldið er í föstum skorðum en ég hef þó stofnað kirkjukór hér á Grund og við erum með fast söngfólk hér hjá okkur. Þar að auki hef ég lagt áherslu á að fá sólista til að brjóta upp hjá okkur og koma fram við guðsþjónustur. Slíkt hefur gefist afskaplega vel. Árið 1997 fór ég í óperuleiðangur til Þrándheims og fékk þá tækifæri að fara á elliheimili til að kynna morgunstundina og hafði konu mína til liðsinnis, þetta vakti það mikla athygli að ári síðar fékk ég þær fréttir að á einu aðal elliheimili þeirra væri komin morgunstund á svipuðum nótum og hjá okkur á Grund.“

Eiginkona Kjartans er Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona og þau voru einmitt bæði við nám í Mílanó á Ítalíu á sínum tíma. „Þetta var afskaplega góður tími fyrir okkur og við kunnum alltaf mjög vel við okkur þar í landi og það er ekki ósjaldan sem við förum til Ítalíu þegar farið er í frí.“

Leikmannaprestur þegar þarf

Þegar Kjartan er inntur eftir því hvað hann sé að fást við þegar starfi hans á Grund lýkur á daginn segir hann:

 „Síðastliðið haust tók ég að mér að vinna á Hrafnistu með sr. Svanhildi Blöndal og við förum á fjórar deildar heimilisins og á Vífilsstaði og svo sé ég þar einn um söngstund á föstudögum. Ég hef reyndar tekið að mér að vera leikmannaprestur þar þegar Svanhildur er upptekin í öðru. Þá styðst ég við bókina Sögu Dagsins eftir Jón Kr. Ísfeld og er með litla sögu, tilvitnun í Nýja testamentið, fer með bæn og svo er sungið. Ég hef einnig á löngum tímabilum séð um morgunbænina á Grund og á föstunni hér áður voru passíusálmarnir svo lesnir upp í stað bænar.“ Fyrir utan þetta segist Kjartan einnig kenna söng í Hafnarfirði en þau hjónin hafa komið sér upp fínni aðstöðu heima fyrir söngkennsluna. „Þar fyrir utan hef ég skemmt ferðamönnum á Fjörukránni í Hafnarfirði. Svo má ekki gleyma því að ég er aðstoðarkórstjóri í Óperukór Hafnarfjarðar og syng þar auðvitað með af fullum krafti. Þar erum við félagarnir um sjötíu talsins og þessa dagana er verið að taka upp efni á geisladisk sem við vonumst til að verði gefinn út á næsta ári.“ Kjartan hefur meira og minna alltaf verið viðloðandi kórstjórn, hann stofnaði Karlakór Stöðvarfjarðar og hefur síðan verið með Samkór Kópavogs, Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík og Trésmíðakórinn í Reykjavík svo dæmi séu tekin.

Gönguferðir og ferðalög

Þegar starfsdegi lýkur hvað er það þá sem Kjartani finnst gott að gera við tíma sinn?

„Ég reyni að fara sem oftast í líkamsrækt og stunda töluvert gönguferðir. Annars er tónlistin stór hluti af lífi okkar hjóna og hún er töluvert plássfrek í okkar lífi. Við Eín Ósk eigum einn son, Heimi Þór, sem verður stúdent í vor frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og stefnir á háskólanám. Hann er sjálfur mikill músíkant og söng m.a. með okkur þegar Óperukór Hafnarfjarðar setti upp Cavallieria Rusticana fyrir tveimur árum í samvinnu við Íslensku óperuna. Auðvitað getum við svo kúplað okkur út , skroppið í stutt ferðalög og rætt um heima og geima þegar við þurfum á hvíld að halda“, segir Kjartan að lokum.

 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg