|
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:26 |
|
Heimilisprestur Grundar er séra Auður Inga Einarsdóttir. Hún sinnir sálgæslustörfum á Grund, bæði fyrir heimilisfólk, aðstandendur þess sem og starfsfólk. Hún vitjar heimilisfólks til andlegrar umönnunar og hefur fundi með starfsfólki. Hefur kveðjustund við dánarbeð sé þess óskað. Viðtalstímar heimilisprests eru eftir samkomulagi. Símar heimilisprests eru 530-6182 og 862-0620.
Sr. Pétur Þorsteinsson starfar einnig við sálgæslu á Grund. Þegar fólk flytur á Grund hittir það Pétur sem gefur því Nýja testamentið og bænabækling Kristilegs félags heilbrigðisstétta auk þess sem hann kynnir þá afþreyingu sem í boði er á Grund. Sr. Pétur tekur einnig æviágrip fólks sem býr á Litlu Grund og Minni Grund. Pétur, sem kallar sig æskulýðsfulltrúa heimilisins ,er virkur í félagsstarfi heimilisins og starfar að hluta í Ási í Hveragerði.
Á Grund starfar einnig djákninn Svala Sigríður Thomsen við kærleiksþjónustu. Störf hennar felast í sálgæslu við heimilisfólk, aðstandendur og starfsfólk. Hún heimsækir heimilisfólk og veitir stuðningsviðtöl, hefur umsjón með sjálfboðinni heimsóknarþjónustu, minningavinnu og helgistundum á deildum og hefur kveðjustund við dánarbeð sé þess óskað. Hún er einnig með fastar bænastundir og slökun fyrir starfsfólk. Svala er við alla virka daga nema miðvikudaga frá 9-16. Viðtalstímar hennar eru mánudaga og fimmtudaga frá 13-13.30 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Símar djákna eru 530-5154 og 840-5131.
|