| Við bjóðum fólkinu okkar tvisvar í viku upp á handavax og grjónapúðadekur. |
| Mars 2009 - Kristófer Jónatansson |
|
|
|
| Þriðjudagur, 17. mars 2009 13:24 | |||
Djákninn frá Kanada sem heillaðist af Íslandi
Hann hefur gengið um nánast allt Ísland með bakpokann sinn og er mikill unnandi íslenskrar náttúru. Kristófer Jónatansson er starfsmaður marsmánaðar hér á Grund. Árið 1994 kom Christopher John Morden hingað fyrir algera tilviljun og það varð ekki aftur snúið. Hann kom aftur árin 1996, 1997. Þegar hann kom hingað árið 1998 langaði hann að koma hingað í íslenskunám en var of seinn að sækja um. Þá flutti hann frá Toronto til Winnipeg þar sem hann lærði íslensku við Háskólann í Manitoba. Ári seinna sótti hann um styrk hjá menntamálaráðuneytinu til að læra íslensku við HÍ sem hann og fékk. Uppfrá því hefur hann verið búsettur á Íslandi. Hann segist hafa vitað af landinu, lesið um íslensku goðin sem barn og flogið yfir landið 1969 þegar hann fór í sína fyrstu utanlandsferð til Frakklands. Þá hafði flugmaðurinn sagt farþegum frá Surtsey og farþegar horft á landið úr lofti. „Þetta voru einu kynni mín af Íslandi áður en ég kom hingað. Það hvarflaði auðvitað aldrei að mér að ég ætti eftir að setjast að hérna.“ Kristófer fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir nokkrum árum og heitir nú Kristófer Jónatansson en faðir hans hét Jonathan. „Ég hef unnið á Grund frá árinu 2000 og verið í námi meðfram þeirri vinnu. Ég á eftir að skrifa lokaritgerðina mína við Háskóla Íslands svo ég geti útskrifast í íslensku fyrir erlenda nemendur. Ég hef líka verið á sumarnámskeiði í færeysku og verið að læra sænsku sl. þrjú sumur og í haust var ég á undirbúningsnámskeiði við Stockholms universitet fyrir sænskunám á háskólastigi í Svíþjóð.“ Kristófer er annars menntaður í félagsfræði og er með meistarapróf í guðfræði. Hann er vígður djákni og starfaði í nokkur ár sem slíkur hjá biskupakirkjunni í borginni Thunder bay í Norður Ontario og sem sjúkrahússdjákni. En getur hann nýtt starf sitt sem djákni í umönnun á Grund? „Já auðvitað og það geri ég daglega. Mér finnst mikilvægt að líta á Grund sem heimili en ekki sjúkrahús . Ég er fylgjandi því að einingarnar á öldrunarheimilum séu fámennar og að heimilisfólkið fái að ráða sér sem mest sjálft með aðstoð starfsfólks. Ég held líka að þó aldur færist yfir þá hafi heimilisfólk gott af því að viðra sig á hverjum degi. Ungbörn sofa úti í vögnum á Íslandi og þykir engum tiltölumál og hversvegna skyldu þá aldraðir ekki viðra sig daglega með aðstoð aðstandenda eða starfsfólks? Ferskt loft er okkur öllum nauðsynlegt.“ Áttu fjölskyldu hér á Íslandi? „Nei ekki ef frá er talinn kötturinn Oliver. Ég á hinsvegar tvær systur sem búa í Kanada og í Bandaríkjunum. Sú systir mín sem er búsett í Kanada hefur einmitt heimsótt mig hingað fimm sinnum og er heilluð af landi og þjóð.“ Hvað er það sem heillaði þig við Ísland í upphafi? Það var náttúran og landslagið. Ég hef ferðast mjög mikið um landið, bæði með Útivist og Ferðafélagi Íslands og verið á eigin vegum með tjaldið og bakpokann á gönguferð víðast þar sem hægt er að komast. Ég þekki íslenskt landslag orðið býsna vel. Fyrir fjórum árum byrjaði ég svo að ganga gönguleið í Svíþjóð sem heitir Kungsleden. Hún hefst í Abisko þjóðgarðinum í Norður Svíþjóð og endar í Suður Svíþjóð. Ég á enn eftir 25 kílómetra göngu en leiðin er 425 kílómetrar. Að því loknu get ég hugsað mér að ganga Pílagrimsleden sem er frá Osló til Þrándsheims og er 800 kílómetrar“ Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi? „Húseyjar eru í miklu uppáhaldi en þar er bóndabær og farfuglaheimili og fólk fer þangað mikið í útreiðatúra. Ég hef verið þarna tvisvar og útsýnið er stórfenglegt á þessum stað.“ Sérðu fyrir þér að vera áfram hjá okkur á Grund? „Já það er mjög þægilegt að vera í svona vaktavinnu. Þegar ég er að læra þá stíla ég á kvöldvaktirnar og svo er alltaf hægt að skipta við starfsmenn um vaktir ef eitthvað kemur uppá. Yfirmenn eru líka mjög þægilegir með að veita launalaust frí. Ég fékk leyfi í tíu mánuði sl. haust en útaf kreppunni þá dreif ég mig heim. Það var of dýrt að leigja húsnæði í Svíþjóð og búa þar. Ég er því kominn heim og það er líka gott.“
|
| Forsíða |
| Starfsmenn |
| Þjónusta |
| Saga Grundar |
| Minningarkort |
| Matseðill |
| Ættingjabandið |
| Veftré |