|
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:25 |
Á Grund starfa sex læknar í fastri stöðu. Árni Tómas Ragnarsson og Sjöfn Kristjánsdóttir eru yfirlæknar, en Árni starfar einnig sem sérfræðingur í gigtlækningum og Sjöfn sem sérfræðingur í meltingarfærasjúkdómum. Læknarnir hafa hver sínar ákveðnu deildir innan heimilisins þannig að hver íbúi hefur sinn lækni. Þeir koma á heimilið alla daga ársins og gegna auk þess eru bakvöktum allan sólarhringinn. Aðrir sérfræðilæknar sem koma á heimilið vikulega eru háls-nef og eyrnalæknir, og geðlæknir. Augnlæknir kemur hálfsmánaðarlega. Kvensjúkdómalæknir, skurðlæknir og húðsjúkdómalæknir koma eftir þörfum. Þá starfar tannlæknir á heimilinu. Aðra sérfræðiþjónustu fá heimilismenn á stofum eða göngudeildum úti í bæ eftir tilvísun lækna á Grund. Reglulegir samráðsfundir eru með lækni, hjúkrunarfræðingi og sjúkraþjálfara hvers íbúa auk þess sem sömu aðilar halda fundi með fjölskyldu íbúa eftir þörfum.
|