Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Mánaðarlega er boðið upp á kvikmyndasýningu á Grund.
Hjúkrun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:21
Hjúkrunarforstjóri ber faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu í samvinnu við deildarstjóra deilda og húsvaktar. Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðstoðarfólk starfa við hjúkrun og umönnun á Grund allan sólarhringinn með vellíðan og öryggi heimilismanna að leiðarljósi. Áhersla er lögð á að líkna og hjúkra heimilismönnum í notalegu og heimilislegu umhverfi sem þeir þekkja og treysta. Umhyggja fyrir einstaklingnum og hjálp til sjálfshjálpar er ávallt til grundvallar og áhersla lögð á samvinnu við aðstandendur. Með það fyrir augum eru haldnir fjölskyldufundir við komu íbúa á heimilið og eftir þörfum. Áhersla er lögð á góð samskipti. Hjúkrunarforstjóri er Sigrún Faulk og staðgengill  hennar Anna Sigríður Zoega.
 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg