|
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:20 |
|
Tveir hársnyrtar starfa á Grund, Hallveig Sigurðardóttir og Ragnhildur Sumarliðadóttir. Hársnyrtistofan er til húsa á Litlu Grund og er hún opin alla virka daga frá 9.-15. Heimiliskonum stendur til boða að fara í permanent eftir þörfum, lagningu vikulega og svo í hárlitun og í klippingu. Heimilismönnum býðst að koma í klippingu. Hliðrað er til fyrir heimilisfólki þegar afmæli eða stórviðburðir í lífi fólksins standa fyrir dyrum. Heimilisfólk greiðir sjálft hluta kostnaðar frá og með 1. mars 2009 eða 2.000 krónur fyrir lagningu, 1.500 krónur fyrir klippingu (kraga), 2.000 krónur fyrir herra- og dömuklippingu, 5.000 krónur fyrir permanent og 3.000 krónur fyrir hárlitun.
|