Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Við tökum vel á móti börnum sem koma til okkar í heimsókn.
Handverk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:19

Iðjuþjálfun sem er á 4. hæð í austurhúsinu er með handavinnu virka daga frá kl. 13:00 - 16:00. Þar er boðið upp á alls kyns verkefni eftir smekk og áhugasviðum fólks.

Um þessar mundir eru íþróttapúðar vinsælir. Þetta eru sérhannaðir krosssaumspúðar saumaðir í grófan jafa, með merki íþróttafélaga, íslenskra og erlendra. Þá hafa handgerðu kertin verið vinsæl og vörur sem eru þæfðar úr ull svo dæmi séu tekin.

Eins getur fólk komið með sínar eigin hugmyndir og fengið þær útfærðar.

Það er mikilvægt fyrir heimilisfólkið að geta komið handavinnu sinni í sölu og alla virka daga frá 13.-16. getur fólk komið og keypt handverk heimilisfólks. Við hvetjum  aðstandendur og velunnara heimilissins til að líta við hjá okkur.

img_0339.jpg

 

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg