|
Fimmtudagur, 27. janúar 2005 15:16 |
|
Ýmislegt er í boði til dægrastyttingar á Grund. Morgunstund er alla virka daga frá 9.15-11.15 í dagstofunni á 3. hæð. Þar er flutt morgunbæn, gerðar leikfimiæfingar, lesið úr dagblöðum, lesin framhaldssaga, ljóðalestur, söngur og ýmislegt fleira. Vinafundir eru haldnir á deildunum og boðið upp á harmonikkudansleiki, upplestur, hattaböll, myndasýningar, söngskemmtanir og fleira. Á morgnana er hægt að taka þátt í fjölbreyttu starfi, spilamennsku, málun, ljóðalestri og árstíðabundnu starfi líka eins og kökubakstri fyrir jólin.
|