|
Fyrir rúmum tveimur áratugum kom Einar Sturluson söngvari að máli við Kjartan Ólafsson söngstjóra og bað hann um að vera með tónlistarstund á Grund.
Einari Sturlusyni söngvara tókst að lokka Kjartan í vinnu á Grund og söng þá með honum sjálfur en einnig Olga Sigurðardóttir. Gestur Sturluson las þá framhaldssögu fyrir heimilisfólk.
Síðan hafa tónlistarstundirnar verið að þróast og breytast í áranna rás og Kjartan segir að nú orðið þekki allir á heimilinu þessar tónlistarstundir sem morgunstundir.
Kjartan segir að stundirnar séu dýrmætar fyrir fólkið, Klukkan níu á morgnana fyllist setustofan á 3 hæð og þá hefst stundin á því að Kjartan syngur með heimilisfólki og spjallar. Síðan koma Örnólfur Thorlacius, Auðunn Bragi Sveinsson og Theódóra Theódórsdóttir til skiptis og lesa uppúr ýmsum bókmenntum. Að lestrinum loknum er farið með morgunbæn sem yfirleitt er í höndum heimilisprests eða djákna. Þá er kominn tími fyrir morgunleikfimina sem er í höndum íþróttakennarans Alberto. Boðið er upp á kaffisopa og svo er haldið áfram að syngja þangað til farið er að lesa það sem fréttnæmt þykir úr dagblöðunum. Kjartan segir að stundum komi góðir gestir í heimsókn sem taka þá lagið, lesa úr verkum sínum eða sýna leikþætti eða dansatriði. Að öllum ólöstuðum þá segir Kjartan að yfirleitt slái það í gegn þegar börn komi í heimsókn og skemmti heimilisfólkinu.
Dansað og sungið
En söngurinn hættir ekki þó morgunstundinni ljúki. Þá tekur við söngur og dans á öðrum stöðum í húsinu. Þrisvar í viku kemur heimilisfólk af Litlu Grund og Minni Grund saman í garðskálanum og syngur undir stjórn Kjartans. Theódóra Theódórsdóttir og Sólveig Sigurðardóttir mæta með honum og lokka fólkið með sér út á gólf að dansa við dunandi harmonikkuleik Kjartans. Sama er uppi á teningnum á deild Grundar fyrir heilabilaða. Þangað halda þeir Kjartan, Alberto íþróttakennari, Theódóra og Sólveig og dansa og syngja með heimilisfólkinu nokkrum sinnum í viku.
Gaman að fá gesti
Kjartan segir að það sé alltaf tilbreytni og virkilega gaman að fá gesti á Grund og hann hefur fengið ýmsa söngvara til að koma og taka lagið með sér um árin. Þá býr Kjartan svo vel að vera annar af þeim sem standa að Óperukór Hafnarfjarðar en konan hans Elín Ósk Óskarsdóttir er þar kórstjórnandi og sjálfur tekur Kjartan virkan þátt í starfinu. Félagar hans úr kórnum hafa komið og sungið á hátíðum og Elín Ósk sungið einsöng. Þá hefur Gerðubergskórinn komið reglulega í heimsókn og ýmsir aðrir kórar. Það er óhætt að segja að tónlistarstarfið sé blómlegt á Grund og Kjartan sem hefur borið hitann og þungan af starfinu hefur verið fenginn til að kynna starf sitt víða, m.a. á dvalar- og hjúkrunarheimili í Þrándheimi. Í kjölfar heimsóknarinnar var ákveðið að taka upp morgunstundir á heimilinu í Þrándheimi sem eru með svipuðu sniði og hér á Grund.
![img_0617.jpg height=300 alt=img_0617.jpg src=http://www.grund.is/images/stories/frettir/img_0617.jpg]()
|