| Matur er eldaður frá grunni á staðnum og bakari heimilisins sér um kökubaksturinn. |
| Starfsmannafélag Grundar |
|
|
|
|
Starfsmannafélag Grundar var stofnað í nóvember árið 1999. Félaginu er ætlað að halda uppi samstöðu meðal starfsmanna og brjóta upp hversdagsleikann með ferðalögum bæði innanlands og til útlanda, árshátíð og ýmiskonar uppákomum. Félagsmenn geta einnig komið með uppástungur um eitthvað skemmtileg til að gera. Dregið er úr happapotti um vinning fjórum sinnum á ári. Þá fær viðkomandi í launaumslagið 10.000 kr. gjafakort á veitingahús og á veturna er einn vinningshafi dreginn út á mánuði sem fær gjafabréf fyrir tvo í leikhús. Í ár stendur starfsmannafélagið fyrir ferð til Berlínar og fyrirhugað er að fara í fjölskylduferð út fyrir borgarmörkin í byrjun sumars. Félagsmenn þurfa að hafa greitt í félagið í sex mánuði áður en þeir fá niðurgreitt í utanlandsferðir félagsins eða aðrar stórar ferðir innanlands. Gegn framvísun starfsmannaskírteinis fá félagar 15% staðgreiðsluafslátt í Húsasmiðjunni og 12% ef greitt er með kreditkorti. Þá geta félagsmenn einnig fengið sérstök afsláttarskírteini hjá Olís.
Félagsgjald er 500 kr. á mánuði og ekkert inngöngugjald er tekið. Aðalfundur félagsins er haldinn í mars á ári hverju.
|