|
Fimmtudagur, 17. janúar 2008 10:04 |
|
Svala Sigríður Thomsen djákni á Grund er með skipulagða vinafundi (minningavinnu) með heimilisfólki og henni til aðstoðar er Dragana.
Höfuðtilgangurinn með minningavinnu er yfirleitt að bæta líðan fólksins sem í okkar tilfelli eru aldraðir einstaklingar, en auðvitað er hægt að nota minningavinnu með öllum. Minningavinna stuðlar að tengslamyndun, bæði milli þátttakenda í hópum og starfsfólks sem að henni kemur. Hún gefur öldruðum skjólstæðingum færi á að vera veitendur fremur en þiggjendur. Hún er talin geta styrkt sjálfsálit og sjálfsmynd, dregið úr þunglyndi og haft margar aðrar jákvæðar afleiðingar. Vinafundir eru haldnir á öllum deildum og hægt að fá nánari upplýsingar hjá Svölu Sigríði Thomsen djákna.

|