Grund á og rekur Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði.
Skemmtilegur ljóðalestur
Föstudagur, 09. júlí 2010 03:35
Fyrir skömmu kom til okkar góður gestur, Ragnhildur Steindórsdóttir leikkona. Hún las úr Ljóðabók barnanna og Kvæðasafni Þórarinns Eldjárns. Heimilisfólkið kunni vel að meta þennan skemmtilega ljóðalestur Ragnhildar. Vonandi gleður hún okkur aftur með heimsókn.
Dansað í góða veðrinu
Miðvikudagur, 23. júní 2010 12:59
Veðurblíðan er einstök í dag og í morgun þegar heimilisfólk var að fara að dansa var ákveðið að færa ballið út í port. Þar var tjúttað, við harmonikkuleik söngstjóra heimilisins, Kjartans Ólafssonar. Heimilisfólki var boðið upp á límonaði og súkkulaðikex en myndirnar segja allt sem þarf.
Grund tekur að sér rekstur 110 rýma hjúkrunarheimilisins í Mörkinni
Mánudagur, 21. júní 2010 14:22
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra og Guðrún B. Gísladóttir forstjóri Grundar undirrituðu síðastliðinn föstudag samning um rekstur á nýju og glæsilegu 110 rýma hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík. sem hlotið hefur nafnið Mörk – hjúkrunarheimili.
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir að með opnun Markar sé orðin að veruleika sú stefna sem mörkuð hefur verið til framtíðar um gjörbreyttar og bættar aðstæður aldraðra á hjúkrunarheimilum með áherslu á sjálfstæði og virðingu aldraðra og rétt þeirra til heimilis og einkalífs.