|
Geislaði af henni í upphlutnum á níræðisafmælinu |
|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:43 |
|

Arnheiður Lilja Guðmundsdóttir fagnaði níræðisafmæli sínu þann 1. júlí síðastliðinn. Hún var svo glæsileg í fallega upphlutnum sínum að við máttum til með að smella af henni mynd í tilefni dagsins. Eiginmaður Arnheiðar, Geir Austmann Björnsson, er einnig búsettur á heimilinu. |
|
|
Ljóðalestur og kaffihúsastemmning |
|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:31 |
|

Einn góðviðrisdaginn nýverið komu Halldór C og Ólafur Brynjar hingað á Grund og lásu glefsur úr ljóðum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi en verk hans verða endurútgefin á næstunni. Veðrið var frábært og fyrir utan sólstofuna myndaðist þessi líka frábæra kaffihúsastemmning.
|
|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:24 |
|

Hljómsveitin Silfurberg kom og gladdi heimilisfólk með söng fyrir skömmu. Hljómsveitin samanstendur af sex einstaklingum, söngkonu og fimm hljóðfæraleikurum, en leiðir þeirra lágu saman í tónlistarskóla FÍH. Í sumar ætlar hljómsveitin að flytja norræn þjóðlög í eigin útsetningum fyrir gesti og gangandi víðs vegar um Reykjavík. Hljómsveitina skipa Lilja Björk Runólfsdóttir (söngur), Baldur Tryggvason (gítar), Sigmar Þór Matthíasson (bassi), Ingi Bjarni Skúlason (hljómborð), Þorvaldur Halldórsson (trommur) og Daníel Geir Sigurðsson (trompet) |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 84 |