|
Ljóðverk las í morgunstund |
|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 11:22 |
|

Hópurinn Ljóðverk kom í heimsókn í morgunstund nýlega og les upp úr ljóðum fyrir heimilisfólkið hér á Grund. Það er alltaf gaman að fá ungt og hresst fólk í heimsókn til að lífga upp á lífið og tilveruna. |
|
|
Geislaði af henni í upphlutnum á níræðisafmælinu |
|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:43 |
|

Arnheiður Lilja Guðmundsdóttir fagnaði níræðisafmæli sínu þann 1. júlí síðastliðinn. Hún var svo glæsileg í fallega upphlutnum sínum að við máttum til með að smella af henni mynd í tilefni dagsins. Eiginmaður Arnheiðar, Geir Austmann Björnsson, er einnig búsettur á heimilinu. |
|
Ljóðalestur og kaffihúsastemmning |
|
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 10:31 |
|

Einn góðviðrisdaginn nýverið komu Halldór C og Ólafur Brynjar hingað á Grund og lásu glefsur úr ljóðum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi en verk hans verða endurútgefin á næstunni. Veðrið var frábært og fyrir utan sólstofuna myndaðist þessi líka frábæra kaffihúsastemmning.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 83 |