Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Heimilisfólkið okkar selur fallega muni sem það býr til í húsnæði iðjuþjálfunar alla virka daga frá 13-16.
Nakinn maður og annar í kjólfötum á Grund
Miðvikudagur, 17. mars 2010 13:12


Það ríkti mikil spenna í gær þegar leikhópurinn Snúður og Snælda kom og setti upp sýninguna Nakinn maður og annar í kjólfötum hér í hátíðarsal Grundar. Yfir áttatíu manns mættu á leikritið, flestir voru heimilismenn en sumir buðu með aðstandendum sínum. Hlátrasköllin ómuðu um salinn og allir ánægðir þegar sýningunni lauk, leikendurnir og gestirnir.

Nánar...
 
Fjör á hattaballi
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 18:09

Það ríkir tilhlökkun í marga daga áður en hattaballið er haldið á öskudag. Fyrir ballið þarf að mæta í vinnustofuna til að máta hatta og spá og spekúlera og sumir mæta auðvitað í búning og þurfa að velta honum fyrir sér. Bæði starfsfólk og heimilisfólk tekur þátt í að gera þennan dag skemmtilegan á heimilinu og stundum koma börn starfsfólks í heimsókn og sýna hvað þau eru flott í búningunum sínum. Frábær dagur að venju.


Nánar...
 
Börn úr Melaskóla í heimsókn
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 18:08


Það er alltaf gaman þegar börn koma í heimsókn á Grund. Í vikunni hafa í tvígang komið krakkar úr Melaskóla og glatt okkur með söng og elskulegri framkomu. Heimilisfólkið hefur alltaf gaman af því að hlusta á börnin syngja og spjalla við þau um daginn og veginn. Hann Magnús heimilismaður gladdi þau líka þegar hann fór með rímur en þau hafa að undanförnu verið að læra rímur í skólanum.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 10 af 83

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg