Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Heimilisfólkið okkar selur fallega muni sem það býr til í húsnæði iðjuþjálfunar alla virka daga frá 13-16.
Harmonikkuleikurinn dunaði
Miðvikudagur, 07. apríl 2010 13:04


Nokkrir félagar sem spila saman á harmonikku komu í heimsókn í hátíðasalinn  á Grund og glöddu viðstadda með frábæru harmonikkuspili. Heimilisfólkið kunni svo sannarlega að meta þessa heimsókn og dansaði með af lífi og sál.  Skemmtilegt framtak hjá þessum skemmtilega vinahópi.

Nánar...
 
Grund eina heimilið sem bauðst til að sjá um rekstur hjúkrunarheimilisins á Suðurlandsbraut
Miðvikudagur, 07. apríl 2010 12:14


Grund sendi í morgun inn tilboð um að reka hjúkrunarheimilið við Suðurlandsbraut 66. Tilboðsfrestur rann út klukkan ellefu í morgun og var Grund eini aðilinn sem bauðst til að sjá um reksturinn. Niðurstaða mun liggja fyrir eftir um það bil tvær vikur. Grund festi nýverið kaup á þremur íbúðabyggingum við hlið hjúkrunarheimilisins á Suðurlandsbraut. Fyrirhugað er að íbúum þar bjóðist ýmis þjónusta í framtíðinni en unnt er að festa sér þar íbúð með íbúðarréttarfyrirkomulagi. Alls er um 78 íbúðir að ræða en fólk er þegar búið  að festa sér um þriðjung íbúðanna.

 
Á annað hundrað páskaegg í bingóinu
Mánudagur, 29. mars 2010 13:50


Það var mikil spenna í páskaeggjabingói aðstandendafélags Grundar sem haldið var í hátiðarsalnum síðastliðinn laugardag. Á annað hundrað manns mættu í herlegheitin. Bingóstjórinn, Hinrik Greipsson, lék á alls oddi og eggin runnu út eins og heitar lummur.  Í lokin fengu svo öll börn páskaegg sem ekki höfðu unnið í bingóinu.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 83

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg