Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Rík áhersla er lögð á að andrúmsloftið á Grund sé heimilislegt.
Heimilisfólk býr til páskakerti
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008 13:07
img_0919.jpgHeimilisfólkið á Grund hefur verið að búa til  páskakerti undanfarið og líka fermingarkerti. Sumir eru afar duglegir í kertagerðinni og eiga kerti aflögu til að selja. Handgerðu kertin fást í verslun Grundar sem er í anddyri heimilisins að norðanverðu og kosta frá 200 krónum. Þau fást einnig hjá iðjuþjálfuninni á 4. hæð en þar er til sölu ýmiskonar handverk eftir heimilisfólkið á Grund.
Nánar...
 
Veisluhöld til heiðurs Önnu Sigríði Zoëga
Föstudagur, 22. febrúar 2008 14:14
img_0913.jpgÞeir sem áttu leið um deild V-2 sl. fimmtudag lentu óvænt í mikilli veislu. Starfsfólkið hafði tekið höndum saman og bakað og búið til allskonar rétti á veisluhlaðborð til heiðurs Önnu Sigríði Zoëga deildarstjóra. Hún var að kveðja deild V-2 sem hún hefur veitt forstöðu til fjölda ára. Veisluborðið var fallega skreytt í bleikum lit en því til viðbótar hafði einn starfsmaður deildarinnar, Chithrani Kanthi, komið með gullbryddað veislustell að heiman frá sér. Anna Sigríður var leyst út með gjöfum og góðum óskum og fallegu korti þar sem forsíðuna prýddu myndir af starfsfólki deildarinnar. Anna Sigríður er ekki að kveðja Grund alveg því nú hverfur hún bara til nýrra starfa á heimilinu.
Nánar...
 
Ný starfsmannahandbók
Fimmtudagur, 21. febrúar 2008 13:35

img_0354.jpg Þegar starfsfólk hefur störf á Grund fær það í hendur nýja starfsmannahandbók. Í handbókinni er auk starfsmannastefnu heimilisins að finna ýmiskonar hagnýtar upplýsingar sem gagnast í starfinu hér á Grund og gott er að hafa á einum stað.  Þar er m.a. að finna upplýsingar um starfsmannafélag Grundar, réttindi og skyldur í starfi en einnig eru þar starfslýsingar, gátlistar, símanúmer deilda og fleira. 

 
<< Fyrsta < Fyrri 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Næsta > Síðasta >>

Síða 74 af 84

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg