|
Lið Grundar vann Boccia mótið |
|
Mánudagur, 03. mars 2008 14:56 |
|
 Lið Grundar og Áss kepptu í Boccia í dag en keppni fór fram í hátíðasal Grundar. Boccia mót var haldið á Grund í dag en þar kepptu lið Grundar og Áss. Þrír leikir voru spilaðir, Grund vann einn, Ás einn leik og þriðji leikurinn endaði með jafntefli. Engu að síður sigraði lið Grundar á stigum og enduðu leikar 20-17 Grund í vil. Þess má til gamans geta að meðalaldurinn í vinningsliði Grundar er nokkuð hár, Hólm er 94 ára, Ruth 87 ára og Ragnheiður 95 ára. Geri aðrir betur! Boðið var upp á kaffi að lokinni spennandi keppni.
|
|
Nánar...
|
|
|
Heimilisfólk býr til páskakerti |
|
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008 13:07 |
Heimilisfólkið á Grund hefur verið að búa til páskakerti undanfarið og líka fermingarkerti. Sumir eru afar duglegir í kertagerðinni og eiga kerti aflögu til að selja. Handgerðu kertin fást í verslun Grundar sem er í anddyri heimilisins að norðanverðu og kosta frá 200 krónum. Þau fást einnig hjá iðjuþjálfuninni á 4. hæð en þar er til sölu ýmiskonar handverk eftir heimilisfólkið á Grund.
|
|
Nánar...
|
|
Veisluhöld til heiðurs Önnu Sigríði Zoëga |
|
Föstudagur, 22. febrúar 2008 14:14 |
Þeir sem áttu leið um deild V-2 sl. fimmtudag lentu óvænt í mikilli veislu. Starfsfólkið hafði tekið höndum saman og bakað og búið til allskonar rétti á veisluhlaðborð til heiðurs Önnu Sigríði Zoëga deildarstjóra. Hún var að kveðja deild V-2 sem hún hefur veitt forstöðu til fjölda ára. Veisluborðið var fallega skreytt í bleikum lit en því til viðbótar hafði einn starfsmaður deildarinnar, Chithrani Kanthi, komið með gullbryddað veislustell að heiman frá sér. Anna Sigríður var leyst út með gjöfum og góðum óskum og fallegu korti þar sem forsíðuna prýddu myndir af starfsfólki deildarinnar. Anna Sigríður er ekki að kveðja Grund alveg því nú hverfur hún bara til nýrra starfa á heimilinu.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 73 af 83 |