Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Í handverksstofu Grundar getur fólk keypt allskonar fallega muni sem eru eftir heimilisfólk.
Einstök heimsókn
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 09:38


Árlega á þessum árstíma  koma á sjöunda tug karla í kjól og hvítt og syngja fyrir heimilisfólkið á Grund. Þetta eru Fóstbræður sem hafa í áratugi haft þann sið að koma eftir lokatónleikana sína og bjóða fólkinu okkar á tónleika. Og þvílík stund sl. laugardag þegar þeir kættu okkur með komu sinni. Herrarnir sungu hvert lagið á fætur öðru, lög sem heimilisfólkið þekkir vel eins og Þú ert yndið mitt yngsta og besta. Söngbræðurnir héldu síðan til eiginkvenna sinna sem biðu þeirra í Fóstbræðraheimilinu en þar var árshátíð Fóstbræðra haldin um kvöldið.

Nánar...
 
Frakki, ævisaga og slæða
Fimmtudagur, 15. apríl 2010 12:22


Það leyndist vandaður frakki, nýleg ævisaga og forláta silkislæða í poka hjá einum starfsmanni Grundar sem heimsótti flóamarkaðinn í gær. Og allt hafði þetta kostað 650 krónur. Starfsmaðurinn alsæll og þær Billa, Laufey og Þórhalla glaðar að fá krónur í kassann því ágóða markaðarins er varið í að gera eitthvað skemmtilegt með heimilisfólki Grundar.  Fjölmenni beið við dyrnar þegar markaðurinn í hátíðasalnum var opnaður og bæði heimilisfólk og starfsfólk sem gerði reyfarakaup. Vörurnar á markaðnum eru gjafir frá velunnurum heimilisins og frá starfsfólki sem er að taka til í geymslunum. Markaðurinn stendur ávallt í tvo daga og honum lýkur því í dag.

Nánar...
 
Óvæntar uppákomur eru svo skemmtilegar
Föstudagur, 09. apríl 2010 13:10


Ungur fiðlusnillingur gladdi óvænt heimilisfólkið þegar hann lék nokkur lög nýverið í morgunstund. Allar svona óvæntar uppákomur lífga upp á lífið og tilveruna og við hvetjum því aðstandendur og velunnara að gefa sér tíma til að koma og gleðja fólkið okkar með einhverjum hætti, bjóðast til að lesa skemmtilega sögu, leika, syngja, fræða....

 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 83

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg