|
Krakkar úr 2. bekk sungu af innlifun |
|
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 12:45 |
|

Einn morguninn mætti tápmikill hópur barna úr Vesturbæjarskólanum til að gleðja heimilisfólk með söng. Börnin sungu af innlifun hin ýmsu lög og fengu klapp að launum. Þau héldu svo áfram för sinni en lofuðu að koma aftur og gleðja okkur með þessum hætti. |
|
|
Mættu til að gleðja heimilisfólkið á Grund |
|
Föstudagur, 23. apríl 2010 10:06 |
|

Það voru aldeilis prúðbúnir nemendur úr Kvennaskólanum í Reykjavík sem mættu hingað á Grund fyrr í vikunni. Það var peysufatadagur í skólanum og stúlkurnar mættu auðvitað í peysufötum eða upphlut og piltarnir í íslenska búningnum. Þau fóru víða en gáfu sér tíma til að koma við á Grund og dansa og syngja fyrir heimilisfólk. Kærkomin heimsókn. |
|
Nánar...
|
|
Tilboði Grundar tekið um rekstur hjúkrunarheimilis á Suðurlandsbraut |
|
Mánudagur, 26. apríl 2010 14:25 |
|

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur tekið tilboði Grundar í rekstur nýs hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut. Heimilið verður frá upphafi rekið með það að markmiði að heimilismenn taki sjálfir ákvarðanir sem snerta daglegt líf þess og haldi þannig sjálfstæði sínu en búi við það öryggi sem fylgir því að búa á hjúkrunarheimili. Þeir verða hvattir til að taka þátt í daglegu lífi á heimili sínu eftir getu og áhuga og markmið Eden hugmyndafræðinnar verða höfð að leiðarljósi sem er að útrýma leiða, einmanaleika og vanmáttarkennd úr lífi fólksins en veita því jafnframt fyrsta flokks hjúkrunarþjónustu. |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 83 |