Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Heimilisfólkið okkar selur fallega muni sem það býr til í húsnæði iðjuþjálfunar alla virka daga frá 13-16.
Innanhússmót í Boccia
Miðvikudagur, 02. júní 2010 14:56


Nýlega var haldið innanfélagsmót í Boccia hér Grund. Þátttakendum var skipt í þrjú lið og fóru Hólm, Guðmunda og Hannes með sigur af hólmi.. Silfurverðlaunin hlutu Ragga, Þórólfur og Þormóður sem er bróðir Hannesar. Frábær keppni og mikill keppnishugur í fólki. Að lokum féll brons í skaut Vigdísar, Friðgeirs, Guðmundar og Gests sem er bróðir Þórólfs. Gestir frá Hrafnistu í Hafnarfirði komu einnig í heimsókn og sigraði Grund Hrafnistu með 11-3 en í öðrum leiknum varð jafntefli 5-5 og þá sigraði Hrafnista með 6-5 í bráðabana.

Nánar...
 
Vöfflukaffið alltaf vinsælt
Föstudagur, 30. apríl 2010 11:23

Í lok apríl buðu Svala Sigríður djákni, Dragana og Hófí heimilisfólki á Minni Grund og Litlu Grund upp á vöfflukaffi en mánaðarlega eru þar bakaðar vöfflur í tilefni vinafundanna sem Svala hefur boðið þar upp á. Stundum grípa heimiliskonur í baksturinn og hafa gaman af. Það er alltaf notaleg stemning sem skapast þegar ilmurinn af nýbökuðum vöfflum læðist um húsið. Aðstandendur sem koma í heimsókn fá auðvitað líka nýbakaða vöfflu með kaffinu og einmitt þennan daginn var gestkvæmt hjá fólkinu okkar og því þröng á þingi.

Nánar...
 
Að vekja á ný lífsneistann með fólki
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 14:36

alt

Fyrir skömmu fékk starfsfólkið á Grund góða heimsókn því Hrefna Brynja Gísladóttir iðjuþjálfi á Akureyri var með mjög áhugaverðan fyrirlestur í hátíðasal.  Jane Verity er danskur iðjuþjálfi sem hefur þróað hugmyndafræðina Spark of life eða að vekja lífsneistann. Hrefna Brynja hefur kynnt sér þessi fræði sem gagnast best að nota  með fólki sem komið er með minnissjúkdóma. Gleði og sterkir litir eru áberandi í þessari hugmyndafræði og eftir kennsluna gekk starfsfólkið út með hugmyndir um nýstárlegar aðferðir til að vinna með.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 83

Íbúðir fyrir 60+

Heimilispósturinn

hp.jpg