Í handverksstofu Grundar getur fólk keypt allskonar fallega muni sem eru eftir heimilisfólk.
Fjör á hattaballi
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 18:09
Það ríkir tilhlökkun í marga daga áður en hattaballið er haldið á öskudag. Fyrir ballið þarf að mæta í vinnustofuna til að máta hatta og spá og spekúlera og sumir mæta auðvitað í búning og þurfa að velta honum fyrir sér. Bæði starfsfólk og heimilisfólk tekur þátt í að gera þennan dag skemmtilegan á heimilinu og stundum koma börn starfsfólks í heimsókn og sýna hvað þau eru flott í búningunum sínum. Frábær dagur að venju.
Það er alltaf gaman þegar börn koma í heimsókn á Grund. Í vikunni hafa í tvígang komið krakkar úr Melaskóla og glatt okkur með söng og elskulegri framkomu. Heimilisfólkið hefur alltaf gaman af því að hlusta á börnin syngja og spjalla við þau um daginn og veginn. Hann Magnús heimilismaður gladdi þau líka þegar hann fór með rímur en þau hafa að undanförnu verið að læra rímur í skólanum.
Það eru bakaðar fjögur hundruð bollur fyrir bolludaginn á Grund og að sjálfsögðu eru bollurnar allar bakaðar á staðnum. Það er alltaf mikil stemmning hér í húsinu þegar þessi dagur rennur upp og sumir næla sér í nokkrar á meðan aðrir láta eina bollu nægja.